fbpx
Föstudagur 21.febrúar 2025
Fréttir

Hagar endurgreiða hlutabætur

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 8. maí 2020 17:41

Bónus er í eigu Haga. Ljósmynd: Fréttablaðið/Sigtryggur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stöndug fyrirtæki sem ákváðu að nýta sér hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar hafa verið gagnrýnd fyrir að þiggja fé úr ríkissjóði sem þau hafi ekki þörf fyrir. Skeljungur brást við þeirri gagnrýni í gær með því að endurgreiða hlutabætur sem félagið hefur þegið. Hagar hafa nú ákveðið að gera slíkt hið sama.

Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að mikil óvissa hafi ríkt í þjóðfélaginu þegar ákveðið var að nýta hlutabótaleið ríkisstjórninnar fyrir Zöru, Útilíf og veitingasölu Olís. Hafi það verið gert til að forðast uppsagnir og viðhalda ráðningarsambandi við starfsfólk. Bónus, Hagkaup, Aðföng og Bananar, sem eru önnur þekkt fyrirtæki innan samsteypunnar, hafi hins vegar ekki nýtt sér hlutabótaleiðina.

Hagar segja að nú sé staðan skýrari og ekki hafi þurft að grípa til uppsagna hjá samsteypunni. Sé því rétt að endurgreiða þá peninga sem Vinnumálastofnun hafi greitt til starfsfólks Haga í apríl.

Tilkynningin er svohljóðandi:

„Stjórn Haga ákvað í dag að endurgreiða Vinnumálastofnun allan þann kostnað sem féll til vegna starfsfólks dótturfyrirtækja Haga sem nýttu sér hlutabótaleiðina í aprílmánuði. Því starfsfólki verður sömuleiðis boðið að fara aftur í það starfshlutfall sem áður var. Endurgreiðslan nemur um 36 milljónum króna.

Mikil óvissa ríkti í verslun og þjóðfélaginu öllu þegar ákvörðun um að nýta hlutabótaleið ríkisstjórnar var tekin innan Haga, í þessu tilfelli Zöru, Útilíf og veitingasölu Olís. Var það gert til að forðast uppsagnir og viðhalda ráðningasambandi við starfsfólk eftir fremsta megni. Önnur dótturfyrirtæki Haga nýttu sér ekki þessa leið, t.a.m. Bónus, Hagkaup, vöruhúsin Aðföng og Bananar, lyfjaverslanir og framleiðslustöðvar. Ekki hefur þurft að grípa til uppsagna innan samstæðunnar vegna Covid 19.

Á þessum tímapunkti er betur hægt að sjá þau áhrif sem faraldurinn mun hafa á félagið í heild og eru þau minni en óttast var í upphafi. Nú telst því rétt að endurgreiða þá fjárhæð sem Vinnumálastofnun greiddi til starfsfólks Haga í aprílmánuði.

Einnig tók stjórn Haga ákvörðun um að ljúka endurkaupaáætlun eigin hluta fyrr en áætlað var en áætlunin hefur verið í gildi frá 28. febrúar sl. Áætlað var að endurkaup myndu nema 500 milljónum króna að hámarki en félagið hefur þegar keypt eigin hluti skv. áætluninni að fjárhæð 450 milljónir króna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt