Kynningin segir einnig að Agnes þekki vel til kynferðisofbeldis á eigin skinni. Hún minnist bæði andlegs og líkamlegs áreitis frá því hún var að hefja prestskap sinn í kringum árið 1980. Þá segir að hún hafi jafnvel verið hundelt í þessu tilliti. „Karlremban og tómlæti feðraveldisins í seinni tíð hafi líka birst henni oft í biskupsembætti.“
Agnes talar einnig opinskátt um skilnaðinn sinn við eiginmann sinn og barnsföður í þættinum. Í kynningunni segir að „hún hafi grátið inni í sér svo árum skipti – og þessu hafi fylgt svo óskaplega mikil skömm fyrir sóknarprestinn í plássinu að hún hafi átt erfitt með að þjónusta bæjarbúa.“
Agnes mun í þættinum rifja upp æskuárin sín á Ísafirði. Faðir hennar, sóknarpresturinn Sigurður Kristjánsson, stóð vaktina þegar sjóslys voru tíð á bænum. Agnes segist hafa ákveðið að gerast aldrei prestur þegar hún var ung vegna þessa, eða að minnsta kosti ætlaði hún ekki að gerast prestur í sjávarplássi. Agnes varð þó á endanum prestur í sjávarplássinu Bolungarvík en skömmu seinna komu snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri. Vikum saman eftir flóðin spurðu börn Agnesar móður sína hvort þau myndu deyja um nóttina.
Hægt er að horfa á Mannamál klukkan 20:00 á fimmtudögum á Hringbraut