fbpx
Sunnudagur 19.janúar 2025
Fréttir

Margdæmdur fjársvikari heldur uppteknum hætti: „Hann mun aldrei hætta. Það er alveg á hreinu“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 8. febrúar 2020 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hann mun aldrei hætta. Það er alveg á hreinu. Það eina sem mun leiða til þess að hann hætti er ef fólk hættir að taka mark á því sem hann segir,“ segir Alexander Freyr Sigurðsson Joensen, en hann er einn af þeim sem segjast hafa farið illa út úr viðskiptum sínum við Gunnar Rúnar Gunnarsson. Gunnar Rúnar hefur margsinnis verið dæmdur fyrir fjársvik og kynferðisbrot og hefur DV fjallar ítarlega um brot hans undanfarin ár. Hann hlaut síðast fangelsisdóm árið 2018, fyrir brot á skattalögum en virðist nú halda uppteknum hætti, með því að skrá sig undir öðru nafni á sölusíðunni Bland.is. Þar hefur hann meðal annars boðið fólki að leigja iðnaðarhúsnæði. Gunnar Rúnar hefur greint frá því fyrir dómi að hann hafi verið metinn greindarskertur.

Margdæmdur fyrir ýmis brot

Gunnar Rúnar Gunnarsson hét áður Gunnar Finnur Egilsson. Sakaferill hans nær aftur til ársins 1995.

Árið 2015 kom Gunnar Rúnar við sögu í fréttaskýringaþættinum Brestum en þátturinn fjallaði um kennitöluflakk. Var Gunnar þar titlaður sem „útfararstjóri“, en þar er átt við þann sem leppar einkahlutafélög sem eru á leið í þrot, gegn greiðslu, og kemur þannig fyrri eigendum félaganna frá því að nafn þeirra verði tengt við gjaldþrotið.

Þá hefur Gunnar Rúnar einnig hlotið dóma fyrir kynferðisbrot. Árið 2007 var hann dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga andlega veikri stúlku, á meðan hún lá veik uppi í rúmi. Hann hafði þá tvisvar áður verið dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á tveimur þrettán ára stúlkum, fyrra brotið átti sér stað 2001 og það seinna árið 2003.

Árið 2016 var hann, ásamt þremur öðrum, hnepptur í gæsluvarðhald í tengslum við 50 milljóna króna peningaþvætti sem komst upp hjá fjármálastofnun vegna óeðlilegrar millifærslu, en málið var umfangsmikið og teygði anga sína til þriggja heimsálfa, Afríku, Evrópu og Asíu.

Þá var seinast greint frá því árið 2018 að Gunnar Rúnar hefði verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum, en brotin áttu sér stað þegar hann starfaði sem framkvæmdastjóri tveggja félaga, Listflísar og 36 ehf. Fyrir dómi sagðist Gunnar hafa verið svokallaður útfararstjóri yfir 36. ehf., en hét því fram að hann hefði ekki „vitað hvað hann væri að gera á tímabili“ því að hann hefði verið metinn greindarskertur.

Undir fölsku flaggi

Alexander Freyr Sigurðsson Joensen er, sem fyrr segir, einn af þeim sem segjast farið illa út úr viðskiptum sínum við Gunnar Rúnar.

Í samtali við DV segist Alexander hafa komist í kynni við Gunnar Rúnar í gegnum sölusíðu Bland.is í desember síðastliðnum. Segist hann hafa selt Gunnari Rúnari bíl í gegnum síðuna, en Gunnar Rúnar hafi skráð sig inn á síðuna undir öðru nafni, Finnur Oddur Sigurðsson. Alexander segist hafa selt Gunnari Rúnari bílinn á 200 þúsund krónur og samþykkt að selja honum bílinn á afborgunum, þremur samtals.

„Hann sagði mér að hann héti Finnur Oddur. Þess vegna ég gat ekki gúglað glæpi hans áður en ég gerði við hann samning um afborganir á bílnum. Hann bauð mér fyrst bíl í skiptum, bíl sem hann átti ekki. Ég sagði nei, og hann seldi þá stelpu þann bíl. Stuttu seinna var hún handtekin á bílnum af því að raunverulegur eigandi hans var þá búinn að tilkynna stuldinn.“

Alexander segist sjálfur hafa þurft að greiða 50 þúsund krónur fyrir skoðun á bílnum. Hann segir Gunnar Rúnar hafa greitt helminginn af því sem hann skuldaði, 100 þúsund krónur, og síðan lofað að restin myndi skila sér þann 10. desember. Það gerðist aldrei. Alexander segist hafa gripið til örþrifaráðs að lokum og þann 24. janúar síðastliðinn birti hann færslu á Facebook-síðu sinni ásamt mynd af Gunnari Rúnari. Í færslunni varar Alexander fólk við að eiga viðskipti við Gunnar Rúnar.

„Hann er lygari og svikari sem hefur stundað svona viðskipti í meira en 30 ár samkvæmt heimildarmanni sem ég lofaði að vera nafnlaus,“ ritar Alexander meðal annars í færslunni.

Færslan stendur ennþá, og hafa yfir 300 manns deilt henni áfram. Þá hafa fjölmargir tjáð sig á samfélagsmiðlinum og greint frá sambærilegri reynslu af viðskiptum við Gunnar Rúnar.

Óttast um börnin sín

Í samtali við DV segist Alexander enn bíða eftir greiðslunni frá Gunnari Rúnari. „Hann er núna farinn að fá menn til þess að tala við mig og hvetja mig til þess að taka færsluna niður. Þekkta ofbeldismenn og ákærða fyrir meira en bara ofbeldi. Núna vill hann bara eiga samskipti við konuna mína en ekki mig, þannig að ég veit ekki alveg hvað hann ætlar sér núna á næstu dögum.“

Alexander kveðst einnig hafa áhyggjur af börnum sínum, því Gunnar Rúnar hefur áður verið dæmdur fyrir brot gegn börnum. Alexander segir lögregluna lítið geta gert í málinu þar sem litið sé á það sem „einkamál“.

Alexander segir lögfræðing á vegum Gunnars Rúnars hafa haft samband við sig og beðið sig um að  „gera aðrar ráðstafanir varðandi að rukka hann“.

„Ég ákvað að gera þetta eins löglega og ég gat með því að vara fólk við honum og fyrirtækinu hans.“

Þá segir Alexander að fjöldi fólks hafi haft samband við hann eftir að hann vakti athygli á málinu, og margir hafi þakkað honum fyrir viðvörunina.

„Einn sem hafði samband á inni hjá honum 700.000 krónur. Annar á inni hjá honum 500.000. Þá var einn sem hafði samband og sagðist hafa verið að vinna hjá fyrirtæki sem á inni fimm milljónir hjá Gunnari. Ég átti gott spjall við einn þeirra í síma og við vorum sammála um að Gunnar sé rosalega klókur einstaklingur þegar kemur að svona hlutum. En á sama tíma er hann algjör vitleysingur, af því að hann er alltaf gómaður að lokum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rúmlega 8 þúsund hafa skrifað undir lista gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði

Rúmlega 8 þúsund hafa skrifað undir lista gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Þór svarar ákæru um manndrápstilraun og fleiri brot

Jón Þór svarar ákæru um manndrápstilraun og fleiri brot
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan uggandi yfir óhugnanlegum tálbeituaðgerðum hóps íslenskra ungmenna – Ganga hrottalega í skrokk á meintum barnaníðingum

Lögreglan uggandi yfir óhugnanlegum tálbeituaðgerðum hóps íslenskra ungmenna – Ganga hrottalega í skrokk á meintum barnaníðingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Öfgar heyra sögunni til – Erfiðleikar, gleði, sigrar og stundum sorg

Öfgar heyra sögunni til – Erfiðleikar, gleði, sigrar og stundum sorg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir

Úkraínsku hermennirnir voru í þjálfun í Frakklandi – Skyndilega hurfu þeir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ofsótti lesbískt par linnulítið í hálft ár – Brjálaðist vegna beiðni um að þrífa upp hundaskít

Ofsótti lesbískt par linnulítið í hálft ár – Brjálaðist vegna beiðni um að þrífa upp hundaskít