fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Þessi bölvaða syndaaflausn

Svarthöfði
Sunnudaginn 5. janúar 2020 10:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Trúaðir Íslendingar biðja almáttugan guð sinn reglulega um sitt daglega brauð og fyrirgefningu syndanna. Svarinu hefur ríkið kallað með hinu svokallaða áramótaskaupi – brauðbita sem ráðamenn og auðvaldið kaupir sér syndaaflausn með. Gerum upp árið, gerum grín að því sem miður fór og höldum svo áfram inn í nýtt ár með hreinan skjöld.

Svarthöfði telur þetta vandamál Íslendinga í hnotskurn. Þessi bölvaða syndaaflausn, þessi fyrirgefning, þessi tilhneiging til að læra ekki af mistökunum og horfa bara beint fram á við. Kannski vill landinn meina að þetta sé dæmi um einhvers konar núvitund eða annað álíka hippasýrubull. En þetta kemur hins vegar í veg fyrir að við drögum lærdóm af mistökum okkar, þetta kemur í veg fyrir framfarir og heldur okkur áfram í þessari vitstola bjartsýnishjarðhegðun sem hefur og mun alltaf koma okkur í koll.

Svarthöfði telur að áramótaskaupið sé ódýr leið íhaldsins og kapítalista til að halda óskertum völdum á landinu. Þeir gera hvurn djöfulinn þeim sýnist ár eftir ár, en síðan er því stillt upp í svonefndan „sketch“ í áramótaskaupinu og þá geta Íslendingar fyrirgefið allt, enda búnir að hlæja að því, og hlátur er allra meina bót, ekki satt.

Að mati Svarthöfða ætti að skipta þessu bölvaða skaupi út fyrir klukkutíma þar sem tekið er fyrir það versta á árinu og kynt undir reiði og óánægju landsmanna. Þá getum við hafið nýtt ár með heygafflana og kyndlana á lofti, tilbúin að knýja fram þær breytingar sem virkilega þarf að gera á árinu.

Ekki láta áramótaskaupið blekkja þig. Berstu á móti múgsefjun í formi glens og gamans. Förum inn í nýtt ár með augun opin og fyrirgefum ekki okkar skuldunautum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin