Samkvæmt flugvallaryfirvöldum í Washington er ekkert frágengið með flug til og frá Washington Dulles flugvelli og Keflavík hjá flugfélagi á vegum nýrra eigenda WOW air, en nýr stjórnarformaður endurreists flugfélags er Michele Ballarin. Á blaðamannfundi í dag var tilkynnt að félagið hefði áætlunarflug milli Washington og Keflavík í október og áfangastöðum verði síðan fjölgað í kjölfarið.
DV hafði samband við flugmálayfirvöld í Washington vegna málsins. Til greiðra svara var Christina Saull, samskiptastjóri hjá Metropolitan Washington Airports Authority. Fyrsta spurning DV var þess efnis hvort USAerospace Associates LLC fyrir hönd WOW air væri komið með leyfi til að lenda á og fljúga frá Washington Dulles flugvelli. Svar frú Saull var eftirfarandi:
„Teymi hjá Washington Dulles alþjóðaflugvellinum hélt fund með frú Ballarin og samstarfsaðilum hennar í síðast mánuði varðandi flugvallarþjónustu á vellinum. En engin flug hafa verið fastsett með WOW air til og frá flugvellinum og ekki hefur verið samið um neina flugvallarþjónustu.“
DV spurði þá hvort gefið hefði verið út „slot“ (þ.e. brottfara- og komutímar) fyrir flugfélag í tengslum við USarospace fyrir farþegaflug eða vöruflutninga í flugi milli Dulles flugvallar og Keflavíkur. Einnig var spurt hvort rætt hefði verið um „slot“ fyrir nýtt íslenskt flugfélag í eigu USaerospace og markaðsþjónustu fyrir það flugfélag.
Svarið var eftirfarandi:
„Það hefur verið haldinn fundur en ekkert er formlega staðfest. Ég hef ekki fleiri upplýsingar um málið umfram það.“
Nýja flugfélagið hefur ekki lagt fram neinar beiðnir um lendingar- eða brottfarartíma á Keflavíkurflugvelli til Isavia. DV hafði samband við Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúa Isavia, sem sagði:
„Okkur hjá Isavia hafa ekki borist formlegar upplýsingar um áform félagsins. En við gleðjumst að sjálfsögðu yfir öllum áformum aðila sem vilja fljúga til og frá Keflavík.“
Beiðnir um slot, þ.e. fasta flugtíma, á Keflavíkurflugvelli berast dönsku fyrirtæki sem annast slíka umsýslu fyrir hönd Isavia og segir Guðjón að vel geti verið að beiðnir þangað hafi borist frá nýja félaginu en hann hafi ekki fengið upplýsingar um það. Isavia kallar nú eftir þessum upplýsingum.
Nokkrir aðilar sem DV hefur verið í sambandi við og þekkja til í flugheiminum telja óvenjulegt að ekki sé búið að ganga frá þessum atriðum nú þegar í ljósi þess að áætlað er að hefja flug í október. Þó má hafa í huga að enn eru meira en sjö vikur þar til október er á enda.