Þetta sagði Michele Roosevelt Edwards, eða Michele Ballarin eins og hún er einnig kölluð, á blaðamannafundi þegar tilkynnt var að USAerospace Associates LLC hafði fest kaup á eignum WOW Air úr þrotabúinu.
Þrátt fyrir að vera nýr eigandi WOW Air þá sást til Michele í flugvél samkeppnisaðilans, Icelandair. Vakin var athygli á þessu í Facebook hópnum Fróðleiksmolar um flug.
Á myndinni má sja Michele í góðu yfirlæti þar sem hún skartar WOW Air fjólubláum gleraugum og nýtur þess að horfa á afþreyingarefni á skjánum fyrir framan sig. Ef vel er að gáð má sjá að hún er með WOW Air flugvélamódel meðferðis. Það er ekki oft sem maður sér WOW Air flugvél fljúga með Icelandair.
Nokkrir meðlimir hópsins tjáðu sig um myndina í athugasemdunum fyrir neðan hana. Fólk furðaði sig á því að hún ferðaðist um á Economic farrými Icelandair en Michele situr við hliðina á neyðarútganginum.
„Hún velur neyðarútgang, treystir ekki Icelandair“
„Æjæj og í verstu sætunum í vélinni“
Aðrir hrósuðu henni fyrir að vera jarðbundin og ferðast um með fólkinu í stað þess að bruna um á einkaþotum.
„Flott hjá henni, vonandi gengur henni allt í haginn. Virðist vera jarðbundinn og röskur stjórnandi“
Hjörvar Örn Brynjólfsson, starfsmaður Icelandair, bendir síðan á það í athugasemd sinni að Icelandair bjóði alla velkomna.
„Það eru allir velkomnir og við þjónustum alla. Samkeppni er af hinu góða það er að segja sé hún á jafnréttisgrundvelli.“