fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
Fréttir

Þrjú börn, móðir og amma myrt – Skordýr vísuðu á sökudólginn

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 2. ágúst 2019 21:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vincent Brothers, aðstoðarskólastjóri í Kaliforníu, gat ekki litið betur út á yfirborðinu. Honum var lýst sem „hetju“ og „góðum samfélagsþegni.“

En á bak við luktar dyr var Brothers annar maður. Árið 2000 giftist hann Joan Harper, ungri stúlku frá Bakersfield. Þau eignuðust soninn Marques, en hjónabandið slitnaði árið 2001 sökum framhjáhalds Brothers. Þau hófu samband aftur og eignuðust dótturina Lyndsey, giftu sig á ný árið 2003, og eignuðust annan son, Marshall.

Nokkrum mánuðum síðar yfirgaf Brothers heimilið og sambandið slitnaði á ný. Og í þetta sinn varð ekkert af sáttum.

Um þjóðhátíðarhelgina þann 4. júlí flaug Brothers til Ohio til að hitta fjölskylduna. Sunnudaginn 6. júlí fór Harper í kirkju með börnum sínum og móður, Ernestine. Tveimum dögum síðar kom vinkona Harper, Kelsey Spann, í heimsókn og steig inn í martröð. Ummerki voru um innbrot og fann Spann lík Harper, 39 ára, Marques, fjögurra ára, Lyndsey, tveggja ára, og Marshall, sex vikna, í rúmum þeirra. Hin sjötuga Ernestine lá látin í anddyrinu. Höfðu þau öll verið skotin til bana, auk þess sem stungusár fundust á líkama Harper. Brothers var strax talinn vera valdur að voðaverkinu. Hann var handtekinn og yfirheyrður, og virtist hann vera harmi sleginn, en lögreglan var enn full grunsemda.

Heimili fjölskyldunnar Hér voru Harper, börn hennar og móðir myrt.

Lögreglan gat þó ekki sannað að Brothers bæri ábyrgð á morðunum, hann var með skothelda fjarvistarsönnun, 3.219 kílómetra frá heimilinu, og engin sönnunargögn tengdu hann við morðin, þannig að honum var sleppt úr varðhaldi. Níu mánuðir áttu eftir að líða þar til lögreglan næði gerandanum og það var furðuleg vísbending sem leiddi til handtöku.

Mæðgin Harper og yngsta barn hennar, Marshall, sex vikna.
Elstur Marques fjögurra ára
Dóttirin Lyndsey tveggja ára
Amman Ernestine amma barnanna

Bakgrunnur Brothers kannaður í þaula

Daglegt líf Brothers var orðið það sama og áður, en lögreglan hafði kannað bakgrunn hans í þaula. Þeir sem sáu um rannsókn málsins voru fullvissir um að Brothers væri gerandinn og höfðu reynt sitt ítrasta til að finna glufur í fjarvistarsönnun hans. Vitað var að hann leigði bíl meðan hann var í Ohio, þar sem hann hafði lent í óhappi meðan hann var með bílinn á leigu, bíllinn var því tekinn til rannsóknar. Kílómetrastaðan á bílnum var há og benti til þess að Brothers hefði keyrt langa vegalengd, þannig að Lynn Kimsey skordýrafræðingur var fengin til að skoða bílinn. Það sem hún fann reyndist vera það sem varpaði ljósi á heildarmyndina. Vatnskassi og loftsía bílsins innihéldu sérstaka tegund af vespum, pöddum og engisprettum, sem aðeins finnast vestur af Rocky-fjöllum.

Vatnskassinn Skordýr sem aðeins finnast vestur af Rockyfjöllum fundust í bílnum, þrátt fyrir að Brothers þverneitaði að hann hefði keyrt þangað.

Kinsey sagði dýrin vera í samræmi við „tvær langar vegalengdir til Kaliforníu frá austri.“ Melvin, bróðir Brothers, vék frá fyrri frásögn sinni um að Brothers hefði verið með honum þessa helgi.
Kom í ljós að Brothers hafði keyrt frá Ohio til Kaliforníu, útrýmt fjölskyldu sinni og sett á svið innbrot, áður en hann keyrði aftur til Ohio. Vegalengdin var í heild 8.690 kílómetrar.

Fundinn sekur Brothers við réttarhöldin.

Brothers var handtekinn árið 2004 og kom fyrir dómara árið 2007. Hann brast í grát þegar dómarinn hafnaði lífstíðardómi án möguleika á náðun, og dæmdi Brothers til dauða fyrir morðin. Eddie, bróðir Harper, sagði: „Við erum glöð yfir að hann hafi verið dæmdur á réttmætan máta og fundinn sekur. Við getum núna lokað þessum kafla og haldið áfram með okkar líf.“

Brothers bíður enn dauðarefsingar í San Quentin-fangelsinu í Kaliforníu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman

Dómur kveðinn upp yfir Kourani – Hefur brotið af sér og ofsótt fólk árum saman
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana

Drama í ófullgerðu fjöleignarhúsi – Ósátt við nýju veggina og neituðu að færa bílana
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm

Dópaði og drukkni skipstjórinn hlaut tólf mánaða skilorðsbundinn dóm