Gunnar Jóhann Gunnarsson, sem grunaður er um að banað bróður sínum, Gísla Þór Þórarinssyni, aðfaranótt laugardags í Noregi, játaði brotið við handtökuna. Frá þessu greinir norska fréttaveitan VG.
„Hann greindi frá því þegar hann var handtekinn, en hann hefur ekki verið yfirheyrður enn,“ segir talsmaður lögreglunnar í Finnmörk, Anja M. Indbjør, í samtali við VG. Gunnar Jóhann og Almar, sem grunaður er um hlutdeild af brotinu, verða yfirheyrðir í fyrramálið.
Gunnar hafði áður birt játningu á Facebook síðu sinni þar sem hann bað aðstandendur hins látna afsökunar og sagðist þurfa að lifa við það allt sitt líf að hafa framið þennan verknað.
Einnig er grein frá því að Almar Smári Ásgeirsson, sem var úrskurðaður í viku gæsluvarðhald, hafi áfrýjað ákvörðuninni. Hann hefur hafnað því að bera nokkra ábyrgð á bana Gísla og hefur þegar hafið samtal við lögregluna til að gera grein fyrir máli sínu.
Verið er að rannsaka blóðprufur úr sakborningunum til að kanna hvort þeir hafi verið undir áhrifum þegar verknaðurinn átti sér stað um helgina.