fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Fréttir

Rosalegt myndband úr Reynisfjöru: Útlendingar skríktu úr hlátri þegar maðurinn virtist við dauðans dyr

Ritstjórn DV
Föstudaginn 11. október 2019 13:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski fjölmiðilinn Daily Mail birti í gær myndband úr Reynisfjöru en í því virðist maður nokkur vera við dauðans dyr. Á meðan hlógu þeir sem tóku myndbandið dátt.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Það ku hafa verið tekið í síðasta mánuði. Á myndbandinu má sjá mann sem hafði klifrað upp í stuðlabergið en svo skellir heljarinnar alda á honum.

Maðurinn virðist þó ekki hafa slasast en hæglega hefði getað farið verr. Myndbönd sem þessi eru orðin nær daglegt brauð en tíðar fréttir hafa verið undanfarin ár af hrakningum ferðamanna við Reynisfjöru þar sem sjórinn leynir á sér og getur verið mjög hættulegur.

Aðvörunarskilti á staðnum virðist ekki þjóna tilgangi sínum nægilega vel og hvað eftir annað hefur verið vitnað um glæfraskap ferðamanna á svæðinu. Fyrir tæpum tveimur árum drukknaði þýsk kona á svæðinu er hún sogaðist út með briminu.

[videopress DrCzrpQH]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Í gær

Kamala Harris býður sig fram til forseta

Kamala Harris býður sig fram til forseta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ása og börnin boðuðu til blaðamannafundar – „Enginn vill trúa því að fjölskyldumeðlimur, pabbi þeirra, bróðir eða eiginmaður geti framið slík myrkraverk“

Ása og börnin boðuðu til blaðamannafundar – „Enginn vill trúa því að fjölskyldumeðlimur, pabbi þeirra, bróðir eða eiginmaður geti framið slík myrkraverk“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helgi vísar ásökunum um rasisma á bug og sakar Odd um atvinnuróg og dylgjur – „Þetta er lygi“

Helgi vísar ásökunum um rasisma á bug og sakar Odd um atvinnuróg og dylgjur – „Þetta er lygi“