fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Fréttir

Starfsmaður forsetans ekki rekinn þrátt fyrir „óþolandi athæfi“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 4. október 2019 15:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna kynferðislegs áreits starfsmanns hans gagnvert tveimur konum. Líkt og var greint frá fyrr í dag kvörtuðu tvær konur yfir manninum. .

Í yfirlýsingu segir að maðurinn hafi verið áminntur sé nú heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum. „Vegna fréttar á vef Fréttablaðsins í dag um vinnu- og námsferð starfsmanna embættis forseta Íslands til Parísar 13.-16. september síðastliðinn skal þetta tekið fram: Í ferðinni varð einn starfsmaður embættisins sekur um óþolandi athæfi gagnvart tveimur í ferðahópnum, kynferðislega áreitni í opnu rými og annað háttalag sem aldrei verður fallist á að afsaka megi á nokkurn hátt. Eftir heimkomu greip embættið til viðeigandi aðgerða, meðal annars með hliðsjón af stefnu og áætlun Stjórnarráðsins gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi,“ segir í yfirlýsingu.

Hann segist harma málið. „Um leið og ég varð áskynja um það ólíðandi athæfi sem viðhaft var aflaði ég mér allra mögulegra upplýsinga, meðal annars með viðtölum við alla þá sem málið varðaði. Starfsmaðurinn fór í leyfi og forsetaritari veitti honum skriflega áminningu. Auk þess var starfsmanninum gert ljóst að ekki yrði látið þar við sitja. Í framhaldinu hefur viðkomandi starfsmaður beðið hlutaðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræðiaðstoðar,“ segir í yfirlýsingu.

Svo virðist sem þolendur áreitisins hafi samþykkt að maðurinn kæmi aftur. „Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt samstarfsfólk mitt ‒ hafa í öllu ferlinu verið upplýstir um stöðu og þróun mála og hafa fallist á þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, án þess auðvitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli málsins er þannig lokið með samþykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfsmanni var heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum,“ segir í yfirlýsingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað