Á áttunda tímanum í gærkvöldi var maður handtekinn á veitingastað í Árbæ. Maðurinn var í töluverðri vímu og var til vandaræða inni á veitingastaðnum. Hann var vistaður í fangageymslu.
Tveir ökumenn voru handteknir í gærkvöldi grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra reyndist vera sviptur ökuréttindum.