19 ára gamalli íslenskri stúlku var nauðgað af tveimur þýskum karlmönnum í bænum Hersonissos á Krít í síðasta mánuði. Málið er til rannsóknar hjá þarlendum lögregluyfirvöldum. Samfélagið í bænum er harmi slegið vegna málsins. Árásin er sögð hafa verið afar hrottaleg.
Grískir fjölmiðlar greina frá málinu og lýsa því meðal annars sem „grimmdarverki“, „hryllingi“, „hörmung“ og „ódæðisverki“. Málið er sagt vefjast fyrir yfirvöldum og þá sé allt bæjarfélagið í áfalli vegna þess. Á vef Cretalive og Cretapost er stúlkan sögð hafa verið í „hræðilegu ástandi“.
Síðustu ár hafa sífellt fleiri Íslendingar lagt leið sína til Hersonissos, sem er orðinn einn stærsti og vinsælasti ferðamannabærinn á Krítareyju. Þúsundir íslenskra menntaskólanema voru staddir í útskriftarferð í bænum í síðasta mánuði.
Fram kemur að íslenska stúlkan hafi verið í fríi á Hersonissos þann 13. júní síðastliðinn. Var hún að skemmta sér á bar í bænum og hitti þar mennina tvo frá Þýskalandi. Kemur fram að mennirnir tveir hafi einnig verið staddir í fríi á Krít. Annar þeirra er sagður vera 34 ára gamall en hinn 38 ára.
Samkvæmt málsgögnum drógu mennirnir tveir stúlkuna út af barnum seinna um kvöldið. Á fréttavef Matrix kemur fram að árásin hafi átt sér stað í dimmu húsasundi og að mennirnir tveir hafi nauðgað stúlkunni „margsinnis“. Þeir flúðu því næst af vettvangi. Stúlkan komst til baka á hótelið þar sem hún dvaldi.
Stúlkan leitaði á lögreglustöð í kjölfarið og tilkynnti brotið. Er hún sögð hafa verið „í miklu áfalli“. Lögreglan er sögð hafa brugðist afar skjótt við og leiddi það til þess að mennirnir tveir fundust og voru handteknir aðeins nokkrum klukkustundum síðar. Stuttu eftir að mennirnir voru handteknir bar stúlkan kennsl á þá á lögreglustöðinni „með tár í augum“.
Stúlkan gekkst undir læknisskoðun og kemur fram að læknir hafi meðal annars fundið smápeninga og peningaseðil í leggöngum hennar. Þá kemur fram að erfitt hafi reynst að finna lífsýni á líkama stúlkunnar.
Ekkert sæði fannst við skoðunina en að sögn stúlkunnar notuðu árásarmennirnir smokk.
Mennirnir neita báðir sök í málinu. Við yfirheyrslur sögðust þeir aldrei hafa hitt stúlkuna áður. Þeir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald og er málið til rannsóknar hjá lögreglu samkvæmt frétt á vef Cretalive. Þá er málið komið inn á borð saksóknaraembættisins í Heraklion.
DV hafði samband við blaðafulltrúa utanríkisráðuneytisins við vinnslu fréttarinnar sem gat ekki tjáð sig um málið að svo stöddu.