Lilja Katrín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf., sem m.a. á og rekur DV og dv.is. Lilja er annar tveggja ritstjóra sem ráðnir verða til félagsins.
Lilja Katrín hefur starfað í fjölmiðlum síðustu fimmtán árin. Hún hóf ferilinn á Fréttablaðinu og hefur meðal annars verið ritstjóri Séð og Heyrt, umsjónarmaður innblaðs Fréttablaðsins og Lífsins á Vísi og vefstjóri Mannlífs. Þá hefur hún einnig unnið sem dagskrárgerðarkona í Íslandi í dag og starfað sem kynningarstjóri framleiðslufyrirtækisins Sagafilm. Hún er með BA gráðu í leiklist fyrir sjónvarp og kvikmyndir og hefur leikið í sjónvarpi, talsett auglýsingar, skrifað handrit að gamanþáttum og samið einleik. Lilja mun vinna náið með Guðmundi Ragnari Einarssyni, markaðs- og þróunarstjóra DV, að þróun DV og undirmiðla.
Einar Þór Sigurðsson verður áfram aðstoðarritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar ehf.
„Það er mikill fengur fyrir félagið að fá Lilju Katrínu í ritstjórastólinn,“ að sögn Karls Garðarssonar framkvæmdastjóra Frjálsrar fjölmiðlunar. Bæði sé hún reynslumikil í fjölmiðlum og hafi skýra sýn á hvert skuli stefna með miðla félagsins. „Við bjóðum hana velkomna til starfa, en framundan eru spennandi tímar hjá félaginu,“ segir Karl.