Halla Rut Bjarnadóttir, talsmaður starfsmannaleigunnar Menn í vinnu, fordæmir verkalýðsfélagið Eflingu og kallar fólkið sem þar stendur að kröfugerð gegn Mönnum í vinnu „hryllingsfólk“.
Halla deilir frétt DV frá því fyrr í dag þar sem farið er yfir kröfubréf frá Rétti lögmannsstofu, þar sem þess er krafist að viðskiptavinir Manna í leigu endurgreiði meinta ólögmæta frádráttarliði.
Mikið hefur verið fjallað um mál starfsmannaleigunnar í fréttum DV og samkvæmt sumum fréttunum virtust sumar fullyrðingar rúmensku verkamannanna ekki standast, til dæmis þær að þeir hefðu engin laun fengið greidd eins og þeir greindu frá í fréttum Stöðvar 2 í vetur. DV hefur rýnt í gögn frá starfsmannaleigunni, sent fjölda fyrirspurna á Eflingu og Vinnumálastofnun og reynt að fá botn í hvað er hæft í fullyrðingum beggja aðila. Í áðurnefndri frétt DV er farið yfir kröfur Eflingar vegna meintra vandgoldinna launa starfsmannaleigunnar.
Þessar fáránlegu og ólöglegu kröfur þar sem lögmaður Eflingar vísvitandi leynir niðurlagi laganna og er honum til mikils ósóma sýna betur en allt annað að öllum þessum mönnum voru greidd sín laun. En skaðinn er skeður og engin, ekki ein manneskja, af þessu fólki dettur í hug að biðja okkur eða allt fólkið sem missti vinnuna sína afsökunnar. Eða þá fólkið og fyrirtækin sem borga í sjóði VMST og Eflingar en þessi persónulega aðför þeirra gegn okkur hefur auðvitað kostað tugi milljóna af almanna fé.
Það eru engin orð yfir það hvað þetta hryllingsfólk, eins og ég kýs að kalla þau, hafa valdið okkur miklu tjóni og fjölskyldum okkar allra hrikalegum áföllum og vanlíðan. Þau skeyta því engu heldur halda bara áfram því þau hafa ekki manndóm í sér að viðurkenna mistök sín.
Við skulum ekki gleyma því að þau sökuðu okkur opinberlega um að halda tugum manna í ánauð og þrælkunnarvinnu án þessa að greiða þeim nokkru sinni laun. Þau sökuðu okkur um skjalafals og að brjótast inn á banka reikninga fólksins og taka peninga út. Þetta eru brot sem liggja við einir þyngstu dómar í okkar réttakerfi. Mannorð okkar er ónýtt. Fyrirtækið er ónýtt. Fjölskyldur okkar eru í molum.Annað er að þau höfðu samband við viðskiptavini okkar og hótuðu lögsókn ef þau mundu versla við okkur en lofuðu að vinna ekki fyrir þá félagsmenn til að ná í þessi meintu ógreiddu laun ef þeir mundu ráða þá beint til sín, er þetta eðlilegt? Talandi um vanvirðingu við þetta fólk sem þau þykjast vera að vinna fyrir.
Þetta eru meintu vangoldnu laun Rúmenanna