Um síðustu helgi fjallaði DV um hundsárás sem átti sér stað fyrir utan Húsgagnahöllina við Bíldshöfða. Þar var hundur, sennilega einhvers konar blendingsafbrigði af Labrador, bundinn við reiðhjólastand. Járnsmiður að nafni Guðmundur Helgi Stefánsson skrapp inn í apótek og sá hundinn þegar hann kom út. Virtist hann hinn vinalegasti en trylltist síðan og beit Guðmund í fótlegginn og magann. Fékk hann mikið sár og mar og þurfti að leita til læknis. Guðmundur hafði ekki upp á eigandanum en heyrði tal unglinga sem sögðu hundinn þekktan bithund.
„Ég varð fyrir biti af þessum sama hundi, greinilega,“ segir karlmaður á miðjum aldri sem vill ekki láta nafns síns getið. „Samkvæmt lýsingunni finnst mér það mjög líklegt. Ég hef séð þennan hund stökkva alveg fyrirvaralaust á mig og aðra.“
Hundurinn sem um ræðir er blendingur af Labrador og Border Collie. Hann var bundinn við handrið fyrir utan Bónusverslunina í Faxafeni. Atvikið átti sér stað þann 19. september síðastliðinn, um sex leytið að kvöldi.
„Þessi eigandi er greinilega ekki í lagi. Hann horfði á þetta gerast. Ég kom á hjóli og renndi þarna upp að grindverkinu, skammt frá þar sem hundurinn var bundinn. Ég ætlaði að læsa hjólinu mínu við þetta grindverk. Í því sem ég renni hjólinu mínu fram hjá hundinum stökk hann upp að hendinni á mér þar sem ég hélt um stýrið og beit mig. Hann gjörsamlega trylltist.“
Maðurinn segist hafa orðið dauðskelkaður við þessa árás. Eigandinn var þá kominn út og húðskammaði maðurinn hann fyrir þetta.
„Ég sagði honum að þetta væri óður hundur sem þyrfti að lóga. Hann brást þá hinn versti við og ásakaði mig um að hafa ráðist á hundinn. Hann var eins illur og hundurinn.“
Fékkstu áverka eftir árásina?
„Það mótaði fyrir tannaförum á handleggnum á mér. En það var ekki í gegnum skinnið, þannig að ég var heppinn. Ég fór því ekki til læknis til að fá sprautu eða neitt slíkt, þótt ég hafi ætlað að gera það.“
Hundeigandinn losaði hundinn og héldu þeir á brott. Maðurinn sem varð fyrir árásinni tók ljósmyndir af þeim eftir orðaskiptin.
Sögunni lýkur ekki við þetta atvik. Skömmu síðar sá maðurinn þennan sama hund, bundinn fyrir utan Bónusverslunina í Holtagörðum.
„Þar sá ég að hundurinn veittist að manni sem var á leiðinni inn í búðina. Ólin var hins vegar ekki nógu löng til að hundurinn gæti bitið hann. Þetta ætti að vera lögreglumál. Það er eins og sé verið að stilla þessum hundi upp til þess að hræða fólk og gera því lífið leitt,“ segir maðurinn.