Sólveig Anna Jónsdóttir
472.272 kr. á mánuði
Sólveig Anna Jónsdóttir var kjörin formaður stéttarfélagsins Eflingar í vor. Sólveig Anna kom inn í umræðuna eins og stormsveipur enda eru landsmenn ekki vanir herskárri verkalýðsbaráttu. Áður en hún tók við Eflingu starfaði hún sem ófaglærður starfsmaður á leikskóla. Boðskapur hennar um að allir sem sinni störfum sem einhver þurfi að vinna séu á góðum launum virðist hafa hitt í mark og fékk hún ríflega þrefalt fleiri atkvæði í formannskjörinu en fulltrúi uppstillinganefndar.