„Áhrifavaldurinn“ Sólrún Diego var ein skærasta stjarna Íslands á síðasta ári. Nóg var að gerast í hennar lífi og fengu allir að fylgjast með því í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat.
Sólrún kann þá list að þrífa heimili betur en flestir og mundar edikbrúsann og matarsódann af einstakri lagni. Fyrir jólin kom út hennar fyrsta bók, Heima, þar sem húsráðum hennar eru gerð góð skil og var hún meðal þeirra best seldu. Þá kom hún einnig á laggirnar sérstakri heimasíðu um þrif, mataruppskriftir og fleira, solrundiego.is.
Í febrúar árið 2018 eignuðust Sólrún og maður hennar, Frans Veigar Garðarsson, son en fyrir áttu þau dótturina Maísól sem fylgjendur Sólrúnar kannast vel við.