fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Magnea stal mat og fötum að verðmæti 260 þúsund króna – Fær 8 mánaða dóm – „Það er erfitt að halda sér á beinu brautinni“

Auður Ösp
Mánudaginn 3. desember 2018 13:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Magneu Hrönn Örvarsdóttur í átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot og margítrekuð þjófnaðarbrot.  Brotin sem Magnea er sakfelld eru alls 23 talsins og áttu sér stað á tímabilinu mars – október á þessu ári og oft með einungis nokkurra daga millibili. Magnea á langan brotaferil að baki en brotin teljast flest smávægileg. Í samtali við DV í apríl síðastliðnum sagðist Magnea fullviss um að hún ætti Íslandsmet í handtökum.

Í mars síðastliðnum losnaði Magnea af Hólmsheiði en hún hafði þá setið inni í þrjú ár fyrirbrot sem verða að teljast frekar léttvæg og flest smávægilegt neyslutengt hnupl.

Blaðamaður DV ræddi við hana í apríl síðastliðnum þar sem fram kom að böl hennar væri áfengi og fíkniefni sem hún hefur háð harða baráttu við undanfarin ár. Magnea sagðist vera að reyna að gera hreint fyrir sínum dyrum, meðal annars með því að hringja og senda tölvupóst á verslarnir sem hún hefur stolið úr.  Sagði hún að forsvarsmenn verslana hefðu tekið sér vel en þó væri hún enn víða í banni og mætti til dæmis ekki koma inn í Kringluna eða Smáralind, eða inn á stöðvar N1.

„Það er erfitt að halda sér á beinu brautinni þegar svona niðurbrot eru daglegt brauð. En þetta er minn raunveruleiki,“ sagði Magnea í viðtalinu.

„Ég tók lauslega saman að ég hef líklega verið handtekin og látin dúsa í klefa í Hverfisgötunni um 400 sinnum.“

Í mars síðastliðnum kom Magnea fram í sjónvarpsþættinum Paradísarheimt en þegar það viðtal var tekið hafði hún setið í fangelsi í þrjú ár fyrir ýmis brot á borð við þjófnað og fíkniefnabrot. Magnea opnaði sig þar á einlægan hátt um erfið augnablik í lífi sínu, áfengi, fíkniefni, fangelsi og götulíf en í þættinum kom fram að Magnea hafi verið fyrirmyndarbarn sem hafi skarað fram úr í skóla. Þá var greint frá því að Magnea hafði starfað sem blaðamaður og þýðingar.

Nú á dögunum féll 8 mánaða fangelsisdómur yfir Magneu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Var hún ákærð og sakfelld fyrir fjölmörg fíkniefna og þjófnaðarbrot en fíkniefnabrotin snúa flest að vörslu á amfetamíni en um mjög lítið magn var að ræða. Þá snúa flest þjófnaðarbrotin að hnupli á matvörum,snyrtivörum og fatnaði úr hinum og þessum verslunum á höfuðborgarsvæðinu.

Stal þrisvar sama daginn

Fyrsta brotið átti sér stað þann 18. mars síðastliðinn en þann dag stal Magnea  matvöru og snyrtivöru að verðmæti 17.372 krónur úr verslun Hagkaupa, og var einnig ákærð fyrir að hafa  í vörslum sínum 2,68 g af amfetamíni.

Næsta brot átti sér stað strax daginn eftir en fram kemur í ákæru að hún hafi haft í vörslum sínum 5,16 g af amfetamíni sem hún geymdi innanklæða og lögregla fann við leit á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í kjölfar afskipta.

Þá er hún sakfelld fyrir fjögur þjófnaðarbrot sem öll áttu sér stað í marsmánuði, með nokkurra daga millibilli. Þrjú brotin snúa að þjófnaði á matvöru úr verslunum Bónus og Hagkaup í Reykjavík og Garðabæ en fjórða brotið snýr að þjófnaði úr í verslun Geysis í Kringlunni, en þaðan stal Magnea sólgleraugum og gallabuxum, samtals að verðmæti kr. 16.800 krónur.

Þá er hún ákærð fyrir þrjú fíkniefnalagabrot og þrjú þjófnaðarbrot í apríl mánuði síðastliðum þar sem fíkniefnalagabrotin snúa öll að vörslu á lítillegu magni á amfetamíni en þjófnaðarbrotin snúa að stuld á snyrtivörum, matvörum og fatnaði úr verslunum Hagkaupa og Fjarðakaups í Kópavogi og Hafnarfirði. Stærsta brotið átti sér sað í verslun Hagkaups í Smáralind, Kópavogi, þaðan sem Magnea stal snyrtivörum samtals að verðmæti kr. 35.898 krónur.

Þá var hún ákærð fyrir tvö fíkniefnabrot sem áttu sér stað í  maí mánuði og í sama mánuði stal hún anorakk að verðmæti 28 þúsund krónur úr verslun 66° norður á Laugavegi.

Fjögur þjófnaðarbrot áttu sér stað í júlímánuði en þá stal Magnea snyrtivörum og fatnaði úr verslun Fríhafnarinnar og fatnaði  úr verslunum Smash og Gallerí 17  í Kringlunni og Smáralind. Þá er hún ákærð fyrir tvö önnur þjófnaðarbrot sem áttu sér stað í September, annað sneri að stuld á matvöru úr Hagkaup í Skeifunni og hitt sneri að stuld á flík úr Finnsku búðinni.  3. október stal Magnea matvöru samtals að verðmæti 4.225 kr úr verslun Hagkaupa í Skeifunni og var jafnframt gripin með  o0,94 g af amfetamíni.

Þrjú þjófnaðarbrotanna áttu sér stað sama daginn, 8.október en þá stal Magnea matvörum úr verslun Iceland í Engihjalla og snyrtivörum og fatnaði úr verslunum Hagkaupa og H&M í Kringlunni. Þá er hún ákærð fyrir fjögur þjófnaðarbrot til viðbótar sem öll áttu sér stað með nokkurra daga millibili í októbermánuði og snúa að stuld á íþróttatoppi úr verslun Útllífs í Kringlunni og þjófnaði á matvöru úr verslunum Fjarðarkaupa og Hagkaupa í Skeifunni.

Hefur reynt að bæta fyrir brot sín

Fram kemur í dómnum að Magnea hafi skýlaust játað brot sín. Samkvæmt sakavottorði hennar á hún allnokkurn sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2006. Hefur hún margítrekað gerst sek um vörslu fíkniefna og ýmis hegningarlagabrot, einkum þjófnað, gripdeild og fjársvik.

Hún hlaut síðast  60 daga fangelsisdóm hinn 7. mars síðastliðinn.fyrir endurtekin þjófnaðarbrot og vörslur fíkniefna.

Dómurinn leit til þess við ákvörðun refsingar að Magnea gekkst greiðlega við brotum sínum. Þá kemur fram í niðurstöðu dómsins að rétt sé líta til góðrar hegðunar hennar að undanförnu og þess að hún hefur leitast við að bæta fyrir brot sín.  Þá liggi fyrir að verðmæti þýfisins er almennt lítið.

Hins vegar þótti jafnframt óhjákvæmilegt að líta til ítrekaðra auðgunarbrota hennar og því þótti refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði. Í ljósi sakaferils Magneu taldi dómurinn  efni til að skilorðsbinda refsinguna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr

Kristján ómyrkur í máli á fundi með borgarstjóra – Krafan er skýr
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“
Fréttir
Í gær

Réttarhöld hafin yfir konu sem sökuð er um að stela yfir 8 milljónum af Grunnskólanum á Þórshöfn

Réttarhöld hafin yfir konu sem sökuð er um að stela yfir 8 milljónum af Grunnskólanum á Þórshöfn