fbpx
Miðvikudagur 04.desember 2024
Fréttir

Sigrún Helga segir rektor ætla að sópa málinu undir teppið og hafnar orðum Sigurðar Yngva: „Hann getur auðvitað valið að segja ósatt til að fegra sinn hlut“

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 20. desember 2018 11:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Helga Lund segir viðbrögð Jóns Atla Benediktssonar háskólarektors hafa valdið sér vonbrigðum og það sé greinilegt að það eigi að sópa málinu undir teppið. Sigrún Helga sagði prófessorsstöðu sinni í líftölfræði lausri hjá Háskóla Íslands í gær, ástæðan var að hennar sögn að Háskólinn hefði ekki tekið á kæru hennar til siðanefndar vegna óviðeigandi framkomu yfirmanns innan skólans.

Sjá einnig: Háskólarektor tjáir sig um áreitnimálið

Jón Atli Benediktsson háskólarektor

Í bréfi frá Sigrúnu og lögmanni hennar, Sigrúnu Jóhannsdóttir, segir að það sé ekki er tekið á kynferðislegri áreitni í siðareglum háskólans og því sneri kæran ekki beint að henni. Siðanefnd háskólans Háskólans taldi  yfirmann Sigrúnar hinsvegar sekan um að hafa brotið gegn þremur ákvæðum siðareglna, hann hafi ekki sýnt Sigrúnu Helgu virðingu og látið persónuleg tengsl hafa áhrif á samvinnuna. Alvarlegasta brotið var talið snúa að því ákvæði sem fjallar um mismunun, meðal annars á grundvelli kyns og einelti á vinnustað. Þá taldi nefndin að sannanir skorti fyrir því að sögusagnir og dreifing á meiðandi ummælum um Sigrúnu væru á ábyrgð hans, en sagði þó að „ætla mætti að tengsl væru þar á milli.

Sig­urður Yngvi Krist­ins­son, pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands, sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann hafnar því alfarið að hafa beitt Sig­rúnu Helgu Lund and­legu ofbeldi eða áreitni af neinu tag­i.

Sjá einnig: Sigurður Yngvi hafnar ásökunum Sigrúnar Helgu

Sigrún segir að þrátt fyrir að niðurstaðan hafi legið fyrir frá því um miðjan júlí hafi engin viðbrögð komið frá Jóni Atla Benediktssyni háskólarektor. Sigrún segir óbærilegt að vinna við slíkar kringumstæður. Yfirmaðurinn sé í stöðu til þess að gera lítið úr henni og hennar vinnu og úrskurðurinn hafi engin áhrif. „Ég vildi að siðanefnd tæki afstöðu til þess hvort það væri eðlilegt að yfirmenn innan Háskólans væru að reyna að sofa hjá undirmönnum sínum og það hefði áhrif á starfsöryggi þeirra og framgang á vinnustað. Þetta er ekki einsdæmi því miður. Margir höfðu samband við mig eftir að fjallað var um málið í gær.  Fólk sem hefur sömu sögu að segja og vill gjarnan ræða við fjölmiðla.“

Sigrún Helga hitti háskólarektor á fundi í gær eftir að fjallað var um málið í fjölmiðlum. Þar segir hún að hann hafi skýrt frá því að hann hafi aldrei skoðað úrskurðinn eða sett sig inn í málið.

Í kjölfar þess að hún sagði upp stöðu sinni í gær kom yfirlýsing frá Sigurði Yngva Kristinssyni, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands þar sem hann hafnar alfarið ásökunum um að hafa áreitt Sigrúnu Helgu. „Ég ætlaði aldrei að fara út í nafnbirtingar eða neitt slíkt, leðjuslagur þjónar engum tilgangi“ segir Sigrún.  „Hann velur að fara fram með þessum hætti. Ég er mjög hneyksluð á þessum viðbrögðum en hann getur auðvitað valið að segja ósatt til að fegra sinn hlut. Hann þarf greinilega ekki að óttast viðbrögð háskólarektors.“

Sjá einnig: Sigrún ítrekar ásakanir sínar:Óeðlileg kynferðisleg samskipti, rosalega mikið einelti og andlegt ofbeldi

Sigrún Helga gagnrýnir að stjórnendur HÍ hafi ekki brugðist við niður­stöðu siðanefnd­ar. „Það er alvarlegt mál að háskólarektor lítilsvirði siðanefndina með þessum hætti. Ef það hefur engar afleiðingar í för með sér að brjóta reglurnar hefur siðanefndin enga þýðingu.“

Hún seg­ir að fram hafi komið í máli rektors í dag að þar sem málið verðskuldi ekki form­lega áminn­ingu geti hann ekki brugðist við með öðrum hætti. „Það er frekar ódýrt að fórna mér og mínu mannorði af því þeir hafa ekki getu til að standa með konum í þessari aðstöðu á sama tíma og þeir eru að gera mikið úr jafnrétti innan skólans. Það er alveg ljóst að þegar stjórnendur skólans hafa ekki kjark til að ljúka málinu er óbærilegt fyrir mig að starfa innan skólans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Enn einu gjaldþrotinu hjá Birni Inga lokið

Enn einu gjaldþrotinu hjá Birni Inga lokið
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Viktoría var skilin eftir allslaus í flugstöðinni í Tbilisi – „Hún er peningalaus og kortalaus. Hrædd, kvíðin og ráðþrota“

Viktoría var skilin eftir allslaus í flugstöðinni í Tbilisi – „Hún er peningalaus og kortalaus. Hrædd, kvíðin og ráðþrota“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir rússneska herinn vera eins og „hjólaskóflu“

Segir rússneska herinn vera eins og „hjólaskóflu“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Segir að Úkraína hafi þörf fyrir skotfæri en ekki friðarferli

Segir að Úkraína hafi þörf fyrir skotfæri en ekki friðarferli
Fréttir
Í gær

Stjórnarmyndunarviðræður hefjast á morgun – „Valkyrjurnar eru komnar til að sjá og sigra“

Stjórnarmyndunarviðræður hefjast á morgun – „Valkyrjurnar eru komnar til að sjá og sigra“
Fréttir
Í gær

„Enginn á að vera hryggur um jólin“

„Enginn á að vera hryggur um jólin“