Samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, mun verð á bensíni hækka um 3,30 krónur um áramótin. Einn lítri af dísilolíu mun hækka um 3,10 krónur. Þetta er vegna hækkunar á vörugjöldum á bensíni um 2,5 prósent en þau fara úr 71,45 krónum í 73,25 krónur á lítra.
Einnig hækkar kolefnisgjald á bensín um 10 prósent og fer úr 9,10 krónum í 9,95 krónur á lítra. Morgunblaðið skýrir frá þessu.