Búið er að kalla út björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akranesi vegna lægðarinnar sem nú gengur yfir suðvestuhorn landsins.
Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að nú þegar liggi fyrir á annan tug aðstoðarbeiðna vegna foks á lausamunum, þakplötum af húsum og auðvitað trampólínum.
Á milli 30 og 40 björgunarmanna og kvenna eru við störf en ef spár ganga eftir gengur veðrið hratt niður um hádegið og ætti þá verkefnum að fækka.