Sigurður Ragnar Kristinsson hefur verið dæmdur í 20 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot í rekstri verkatakafyrirtækisins SS verks ehf. Honum er jafnframt gert að greiða um 137 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs. Sigurður var dæmdur fyrir að hafa staðið skil á röngum virðisaukaskattsskýrslum í störfum sínum fyrir félagið.
Vísir greinir frá þessu en dómur í málinu hefur ekki verið birtur á vef dómstóla. Nýverið fóru fram réttarhöld í svokallaða Skáksambandsmáli þar sem Sigurður eru ákærðir fyrir innflutning á miklu magni fíkniefna. Hann er sakaður um að hafa skipulagt og fjármagnað innflutning á fimm kílóum af amfetamíni frá Spáni.
Líkt og frægt er orðið slasaðist fyrrverandi eiginkona hans, Sunna Elvíra Þorkelsdóttir, á þáverandi heimili sínu í Malaga-borg á Spáni í janúar á þessu ári. Hvað átti sér stað ytra liggur ekki fyrir en afleiðingarnar voru skelfilegar. Sunna Elvira þríhryggbrotnaði við fallið og fékk að lokum þann úrskurð að hún væri lömuð til lífstíðar.