fbpx
Þriðjudagur 11.febrúar 2025
Fréttir

Jafnt hjá Celta Vigo og Barcelona í bikarnum

Bjarni Helgason
Fimmtudaginn 4. janúar 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Celta Vigo tók á móti Barcelona í spænska Konungsbikarnum í dag en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Jose Arnaiz kom gestunum yfir strax á 15. mínútu en Pione Sisto jafnaði metin fyrir heimamenn á 31. mínútu og staðan því 1-1 í hálfleik.

Hvorugu liðinu tókst að skora í þeim síðari og lokatölur því 1-1 en seinni leikur liðanna fer fram þann 11. janúar næstkomandi.

Börsungar hvíldu lykilmenn í dag en þeir Lionel Messi og Luis Suarez voru hvorugur með liðinu í kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt