Ernesto Valverde, stjóri Barcelona segir að liðið muni ekki breyta um taktík á næstunni.
Félagið keypti Philippe Coutinho á dögunum og þarf leikmaðurinn að aðlagat leikstíl spænska liðsins.
„Coutinho er meiddur sem stendur en hann mun hjálpa okkur mikið,“ sagði stjórinn.
„Ég mun hins vegar ekki breyta um taktík fyrir hann, það er hann sem þarf að aðlagast,“ sagði hann að lokum.