Ragnhildur Sigurðardóttir vann Einvígið á Nesinu fyrr í dag, en hún hafði betur gegn Alfreði Brynjari Kristinssyni á lokaholunni.
Ragnhildur er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi og er þetta í annað sinn sem hún sigrar góðgerðarmótið Einvígið, en fyrra skiptið var árið 2003.
Var þetta 22. árið í röð sem mótið fer fram á Seltjarnarnesi og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni tengt börnum, nú Barnaspítala Hringsins.
Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins. Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og Kristinn Ólafsson formaður Neskúbbsins afhenti að lokum Þránni Rósmundssyni frá Barnaspítala Hringsins ávísun frá Nesklúbbnum að upphæð 500.000 krónur.
Úrslit í einvíginu urðu eftirfarandi:
1. sæti – Ragnhildur Sigurðardóttir, GR
2. sæti – Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG
3. sæti – Rúnar Arnórsson, GK
4. sæti – Björn Óskar Guðjónsson, GM
5. sæti – Ólafur Björn Loftsson, NK
6. sæti – Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
7. sæti – Kristján Þór Einarsson, GM
8. sæti – Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS
9. sæti – Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
10. sæti – Björgvin Sigurbergsson, GK