Suðurlandsvegur rétt austan við Hveragerði er lokaður vegna umferðarslyss um óákveðinn tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Þeir sem koma að vestan um Hellisheiði geta farið um hringtorg við Hveragerði og niður í Ölfus á leið sinni austur.
Samkvæmt lögreglu er ekki hægt að gefa nánari upplýsingar að svo stöddu.