Kristjón Kormákur Guðjónsson
989.384 kr. á mánuði.
Kristjón Kormákur var ráðinn aðalritstjóri yfir DV, DV.is og tengdum miðlum undir lok árs 2017. Fingraför hans á stefnu miðlanna eru augljós en að auki er hann með afkastamestu blaðamönnum miðilsins. Ritstjórinn brá sér í langþráð frí til útlanda rétt fyrir útgáfu tekjublaðsins og gat því ekki ritstýrt blaðinu eins og venja er. Þess vegna fannst undirmönnum hans þjóðráð að skrifa þennan litla mola um kappann. Þegar kettirnir yfirgefa húsið þá leika mýsnar sér.