„Það rifjaðist upp um helgina að Sindri er frá Króknum. Þar gerði hann einn þekktasta hrekk í manna minnum“. Þetta segir bókaútgefandi frá sama svæði sem rifjar upp á Facebook gamla sögu af strokufanganum Sindra Þór Stefánssyni.
„Venjan á Króknum var að fólk læsti hvorki húsum né bílum, yfirleitt voru lyklarnir í flestum bílum heima við hjá fólki. Sindri gekk á röðina eina nóttina, tók lyklana úr á annan tug bíla og faldi. Það varð uppi fótur og fit næsta morgun. Stundum hefur verið haft á orði að Sindri hafi kennt Króksurum að læsa.“
Aðeins 18 ára gamall var Sindri Þór bókaður í 200 mál hjá lögreglunni. Að sögn útgefandans „þvældist hann um í kerfinu, var settur á fósturheimili, komið fyrir hjá vandalausum, settur á lyf og í sálfræðimeðferð, en það hafði lítil áhrif á hans impúlsívu hegðun. Ég held að hann hafi verið 9 ára þegar hann stal af mér nákomnum. Það hefur margt gengið á hjá Sindra.“
Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur tekur þátt í umræðunum og segir að þarna séu góðu samfélagi lýst, að enginn þurfi að læsa bíl, að „þarna birtist mynd af þessum manni, glaðhlakkalegum á götu í Amsterdam í hópi með dópsölum, hafinn yfir lög og rétt á grundvelli mannréttinda sinna, því nú eru afbrotamenn betur varðir af fordæmum Hæstaréttar Íslands en margir þeir sem höllustum fæti standa. Og kannski er vitað að hópurinn í Amsterdam rekur „skipulagða glæpastarfsemi“ sem var óþekkt á Íslandi til skamms tíma en skapar mikinn auð og mikla hættu. Ekki gott.“
Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur segir í þræðinum að Sindri hafa alla burði til þess að vera mikil og elskuð hetja og goðsagnapersóna í heimalandi sínu. Ef hann er ekki kvæntur maður nú þegar mun hann fá urmul tilboða og bónorða í fangelsinu næstu mánuði og ár.“
Bókaútgefandinn bætir þá við og svarar Silju: „Kvæntur og faðir barna. Þetta er nefnilega tragedía þrátt fyrir allt.“