fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Fréttir

Þorsteinn áfram í gæsluvarðhaldi vegna gruns um alvarleg kynferðisbrot gegn 18 ára pilt

Hjálmar Friðriksson
Föstudaginn 16. febrúar 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Halldórsson, sem er grunaður um hrottalegt kynferðisofbeldi gegn unglingspilti, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Mbl.is greinir frá þessu. Aðalmeðferð í málinu hófst þann 5. febrúar og má því ætla að Þorsteinn muni sæta gæsluvarðhalds þar til dómur fellur.

DV fjallaði á dögunum ítarlega um mál Þorsteins en hann er sakaður um að hafa borið fíkniefni í átján ára pilt með þeim afleiðingum að hann var nánast meðvitundarlaus í viku. Þorsteinn er sakaður um að hafa brotið ítrekað á piltinum í um tvö ár og hófst meint brot þegar drengurinn var fimmtán ára.

Sjá einnig: Þorsteinn grunaður um hrottalegt kynferðisofbeldi

Þorsteinn hefur verið formaður Baldurs, eins af félögum Sjálfstæðismanna í Kópavogi, um árabil en Vísir greindi frá því á dögunum að flokkurinn hafi fjarlægt nafn hans af heimasíðu sinni. Þá starfaði Þorsteinn á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut þar sem hann stýrði þáttum um klassíska tónlist.

Líkt og fyrr segir hófust meint brot Þorsteins gegn piltinum þegar sá var fimmtán ára. Þorsteinn er sakaður um að hafa gefið piltinum peninga, tóbak og farsíma og nýtt sér yfirburði sína gagnvart honum til að hafa við sig samræði og önnur kynferðismök. Þá á Þorsteinn að hafa tekið klámmyndir af piltinum og geymt í læstri möppu í farsíma sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað