Stefnir fjárfestahópnum, forstjóranum og greiðslukortafyrirtækinu
Landsbankinn hefur stefnt Borgun hf., forstjóra Borgunar hf., BPS ehf. og Eignarhaldsfélaginu Borgun slf. Málið er höfðað til viðurkenningar á skaðabótaskyldu félaganna fjögurra og forstjórans vegna sölu Landsbankans á 31.2% hlut sínum í greiðslukortafyrirtækinu.
„Bankinn fékk ekki upplýsingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og réttindi sem fylgdu hlutnum, þ. á m. mögulega hlutdeild í söluhagnaði Visa Europe Ltd. við nýtingu söluréttar í valréttarsamningi Visa Inc. og Visa Europe Ltd.“
Eignarhaldsfélagið Borgun og BPS keyptu eignarhlutinn í Borgun af Landsbankanum í nóvember 2014.