fbpx
Þriðjudagur 15.október 2024
Fréttir

Hann var kallaður asni

Formaður Afstöðu segir deildarstjóra Litla-Hrauns koma fram af lítilsvirðingu við fanga

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 4. október 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hann kallaði mig helvítis asna og sýndi af sér ógnandi hegðun. Að öllu jöfnu kemur Tryggvi fram af lítilsvirðingu við fanga. Flestir eru inni í stuttan tíma og sjá því ekki tilganginn í að halda slíku máli til streitu. Aðrir hafa kannski ekki getu né þolinmæði til þess að fylgja málinu eftir enda kerfið seinvirkt og þungt í vöfum. Ég gat ekki látið þetta viðgangast,“ segir Guðmundi Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga. Nýverið birti umboðsmaður Alþingis álit sitt sem snerist um áðurnefnda framkomu Tryggva Ágústssonar, deildarstjóra í fangelsinu Litla-Hrauni, gagnvart Guðmundi Inga. Tryggvi er staðgengill forstöðumanns fangelsisins. Málið hefur velkst um í kerfinu í rúm tvö ár.

„Helvítis asni“

Atvikin áttu sér stað í apríl 2014 og hefur því málið velkst um í kerfinu í tæp tvö og hálft ár. Atburðarásin sem Guðmundur Ingi kvartaði yfir var sú að með fimm daga millibili á áðurnefndu tímabili lét Tryggvi ósmekkleg ummæli falla um Guðmund Inga. Mennina greinir á um hvort Tryggvi hafi kallað Guðmund Inga „helvítis asna“ eða bara „asna“. Í fyrra skiptið kvartaði Guðmundur Ingi til forstöðumanns fangelsisins og fór fram á afsökunarbeiðni en fékk engin svör. Nokkrum dögum síðar gerði Tryggvi sér ferð á vinnustað Guðmundar Inga og lét í ljós óánægju sína með kvörtunina. Þá greinir á um hver atburðarásin var en ljóst er að Tryggvi endurtók ummæli sín um að Guðmundur Ingi væri „asni“ og sagðist ekki ætla að biðjast afsökunar. Þess ber að geta að atvikin náðust á myndbandsupptöku, að sögn Guðmundar Inga, en þegar ætlunin var að nýta þær í rannsókn málsins kom í ljós að þeim hafði verið eytt.

Afstöðu hefur í gegnum árin borist fjöldinn allur af kvörtunum vegna framkomu Tryggva í garð fanga.

Ekki í takt við vandaða stjórnsýslu

Guðmundur Ingi tilkynnti forstöðumanni fangelsisins aftur um atvikið. Þegar engin svör bárust ritaði hann formlegt bréf til innanríkisráðuneytisins vegna málsins. Eftir talsverðar bréfaskriftir lét innanríkisráðuneytið málið niður falla. Við þessi málalok var Guðmundur Ingi ósáttur og sendi formlega kvörtun til umboðsmanns Alþingis. Niðurstaða umboðsmanns eftir vandlega skoðun var sú að framkoma deildarstjórans hefði ekki verið í samræmi við lagareglur og þá starfshætti sem starfsmaður fangelsisins ber að fylgja. Þessi hegðun og sinnuleysi fangelsismálayfirvalda til að taka á henni hafi ekki verið í takt við vandaða stjórnsýslu.

Tilmæli umboðsmanns eru þau að verklag verði endurskoðað og sérstaklega verði hugað að því að koma meðferð og úrlausn kvartana fanga vegna framgöngu og háttsemi starfsmanna fangelsanna í þeirra garð í tryggari og skilvirkari farveg en raunin varð í þessu máli.

Fjölmargar kvartanir

„Afstöðu hefur í gegnum árin borist fjöldinn allur af kvörtunum vegna framkomu Tryggva í garð fanga. Margar þeirra hafa verið sendar áfram til Fangelsismálastofnunar. Hann lítur niður á fanga og er lélegur í mannlegum samskiptum. Það er með hreinum ólíkindum að hann hafi ekki verið áminntur fyrir framgöngu í starfi sem sýnir að pottur er brotinn í þessum efnum,“ segir Guðmundur Ingi. Að hans mati er nauðsynlegt að einhver úrræði séu í boði þegar slík atviki eiga sér stað í samskiptum fangavarða og fanga. „Því miður eru fleiri starfsmenn en Tryggvi sem koma illa fram við fanga, þótt þeir séu vissulega í minnihluta, og framgöngu þeirra er í mörgum tilvikum hægt að flokka sem gróft einelti. Þegar fangi er talinn leggja fangavörð eða annan fanga í einelti þá er hann umsvifalaust settur í einangrun. Ef fangavörður leggur kollega sinn í einelti þá er það skoðað og gerandinn jafnvel settur í leyfi frá störfum. Hins vegar eru enginn úrræði í boði þegar að fangavörður leggur fanga í einelti,“ segir Guðmundur Ingi.

DV hafði samband við Tryggva Ágústsson vegna málsins en hann taldi rétt að tjá sig ekki um málið opinberlega. Hann tók þó fram að hann vonaðist til þess að eitthvað gott kæmi út úr niðurstöðu málsins og dreginn yrði lærdómur af því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Er ástin nóg?
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Nýtt slagorð Samfylkingarinnar vekur úlfúð – „Eruð þið bara alveg búin að tapa ykkur?“

Nýtt slagorð Samfylkingarinnar vekur úlfúð – „Eruð þið bara alveg búin að tapa ykkur?“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sóði við Spöngina: „Sá ég stykkin frá honum detta þegar ég keyrði fram hjá“

Sóði við Spöngina: „Sá ég stykkin frá honum detta þegar ég keyrði fram hjá“
Fréttir
Í gær

Seldi upplýsingar um skriðdreka Pútíns fyrir 170.000 krónur

Seldi upplýsingar um skriðdreka Pútíns fyrir 170.000 krónur
Fréttir
Í gær

Segir Trump vera heimildarmann Pútíns í Bandaríkjunum

Segir Trump vera heimildarmann Pútíns í Bandaríkjunum