fbpx
Laugardagur 14.september 2024
Fréttir

Jóhann greiddi fyrir útför lifandi konu: Hvattur til að taka smálán þegar peningarnir kláruðust

Blekktur af íslenskri konu á stefnumótasíðu – Bað um lán til að standa straum af kostnaði við útför móður sinnar- Sú reyndist vera sprelllifandi

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 12. júlí 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta hefur reynst mér mjög erfitt og skömmin er mikil. Mér líður eins og algjörum hálfvita að hafa látist blekkjast og gleypt við þessum lygum hennar,“ segir Jóhann Guðni Harðarson, 22 ára gamall maður, sem millifærði rúmlega 220 þúsund krónur inn á reikning íslenskrar konu til þess að hjálpa henni að standa straum af útför móður sinnar.

Síðar kom í ljós að móðir hennar var sprelllifandi. Jóhann Guðni er ósáttur við viðbrögð lögreglu sem sagðist ekki geta hjálpað honum og hann óttast að fjármunirnir séu glataðir. DV hefur undir höndum hluta af samskiptum þeirra tveggja, auk upplýsinga um millifærslur. DV hefur heimildir fyrir því að fleiri einstaklingar hafi lánað konunni fjármuni.

„Ég var auðvelt fórnarlamb fyrir þessa konu.“

„Erfitt að treysta ókunnugu fólki í framtíðinni“

Jóhann Guðni og konan kynntust fyrr á árinu á stefnumótasíðu og byrjuðu að spjalla reglulega saman. „Fljótlega sagði hún mér í óspurðum fréttum að móðir hennar hefði látist og hún væri í vandræðum með að standa straum af öllum þeim kostnaði sem fylgdi útförinni. Fyrst vantaði hana 20 þúsund krónur til þess að greiða sem staðfestingu fyrir kistulagningunni en síðan vatt sagan upp á sig og kostnaðurinn jókst,“ segir hann.

Jóhann Guðni er öryrki sem glímt hefur við andleg veikindi sem hann hefur tekist á við af festu. Hann sá fram á bjartari tíma, en það að lenda í klóm fjársvikara hefur haft afar neikvæð áhrif á líðan hans. Að hans sögn eru fjármál ekki hans sterkasta hlið. „Ég geri mér ekki grein fyrir verðmætinu sem er á bak við þessar tölur í heimabankanum og þess vegna var ég auðvelt fórnarlamb fyrir þessa konu. Hún kunni að ýta á alla takka hjá mér varðandi samúð og góðvild. Þetta mál hefur reynst mér mjög erfitt og það á eftir að reynast mér erfitt að treysta ókunnugu fólki í framtíðinni,“ segir Jóhann Guðni.

Hann hitti konuna aldrei meðan á þessu ferli stóð en hún sendi honum hins vegar reglulega myndir af sér við leik og störf sem jók á traust hans og trúnað gagnvart henni.

Laug til um lát móður sinnar

Konan sem hafði af honum fé starfaði sem skólaliði fyrir rúmu ári síðan en virðist hafa látið af störfum. Eftir að hafa sannfært Jóhann Guðna um að millifæra inn á sig 40 þúsund krónur þá gekk hún sífellt lengra varðandi frekari peningalán. „Hún sagði mér að fyrrverandi vinnuveitandi sinn hefði farið illa með sig og skuldaði sér laun. Það mál væri hins vegar í vinnslu og innan tíðar fengi hún það greitt og þá gæti hún gert upp við mig,“ segir Jóhann Guðni.

Brot af samskiptum Jóhanns og konunnar:

Konan: Gætiru gert mér smá greiða i viðbót og ég skal leggja inná þig 100 kall á mgr

Jóhann: ókei, hvað nú?

Konan: Allt klárt fyrir jarðarför og það en ég sjálf á 0 kr. og vantar bensín og mat og allt 🙁

Eftir að Jóhann samþykkir lánið.

Konan: þú ert yndislegur. Ég hringdi strax í kennarasambandi áðan þegar ég var ekki búin að fá launin og þeir ætluðu að vinna í þessu strax fyrir mig. Vona að það gerist á eftir, annars borga ég í fyrramálið.

Jóhann: Glæsilegt.

Konan: æj takk fyrir að skilja mig elskan : enda mun ég ALDREI SVÍKJA ÞIG : ég er ekki þannig tussa


Konan: En hva segiru gætir þu gert mér pínu meiri hjálp 🙁

Konan: æj þú vilt það ekki 🙁

Jóhann: hvað þarftu mikið ?

Konan: gætir þú kannski 30 þá gæti ég haft smá kaffisopa á eftir fyrir prest og svoleiðis 🙁

Jóhann: Jamm, ekkert mál

Konan: Ef þú mátt missa 40 væri það æði og ég legg inn 150 til baka

Konan: En gæti ég verið ömurleg nuna bara þangað til að þetta dettur inn , vorum að græja jarðaförina en það er bara erfiðdrykkjan eftir 🙁

Jóhann: Ég a þvi miður engan pening. Ekki i bankanum allavegana :/

Konan: Er ég búin að klára allt 🙁

Jóhann: Jebb, á rétt svo 5 þúsund í peningum, ekkert í bankanum.

Konan: Ókei en það er ekkert hægt að taka svona smálán ?

Hann hafi tekið útskýringar hennar trúanlegar enda hefði hann ekki getað ímyndað sér að einhver gæti logið um lát móður sinnar til þess að svíkja fé út úr fólki. „Það fellur margvíslegur kostnaður til út af jarðarför og hún bað um hjálp út af því öllu. Fyrir prestinum, kistunni og erfidrykkjunni og ég beit á agnið enda vorkenndi ég henni sárlega,“ segir Jóhann Guðni. Að hans sögn var konan afar sannfærandi auk þess sem hún sagði honum ítrekað frá hversu illa henni liði út af fráfalli móður sinnar. „Í eitt skipti sagðist hún vera að íhuga sjálfsvíg og mér fannst ýmislegt benda til þess að henni væri alvara. Ég hringdi þá á lögregluna til þess að óska eftir aðstoð en þegar ég sagði henni að hjálp væri á leiðinni varð hún fokreið og krafðist þess að ég myndi hringja aftur og segja að upplýsingarnar væru ekki réttar,“ segir Jóhann Guðni.

Þá sagðist konan vera einbirni og hefði engan til að leita til. „Í góðmennsku minni lánaði ég henni því meira fé,“ segir Jóhann Guðni. Alls lagði hann rúmlega 220 þúsund krónur inn á konuna og fékk fjölbreyttar skýringar frá henni um hvenær von væri á endurgreiðslunni. Hann hefur aðeins fengið um fjórðung upphæðarinnar til baka. „Ég átti smá sjóð en ég endaði með því að lána henni allt mitt fé. Þegar ekkert var eftir þá spurði hún hvort ég gæti ekki tekið smálán og millifært lánið á hana,“ segir Jóhann Guðni.

Ósáttur við viðbrögð lögreglu

Segja má að það hafi verið kornið sem fyllti mælinn og í kjölfarið leitaði hann til vinar síns. Nánari eftirgrennslan þeirra leiddi í ljós að konan hafði logið til um allt sem hún sagði Jóhanni Guðna. Móðir hennar var sprelllifandi og hún átti nokkur systkini. Í kjölfarið ákvað Jóhann Guðni að leita til lögreglunnar en þar var honum frekar fálega tekið. „Ég er mjög ósáttur við viðbrögð lögreglunnar. Fulltrúinn sem var á vakt yppti bara öxlum og tjáði mér að það væri ekkert sem lögreglan gæti gert í þessu. Síðan var mér nánast hent öfugum út af stöðinni,“ segir Jóhann Guðni.

Hann er ráðþrota og óttast að fjármunirnir séu týndir og tröllum gefnir. Þá hefur DV heimildir fyrir því að fleiri einstaklingar hafi lánað konunni fjármuni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sólveig Anna ómyrk í máli og hjólar í Elvar: „Hefur fyrir vana að ráða fólk í vinnu en greiða þeim ekki laun“

Sólveig Anna ómyrk í máli og hjólar í Elvar: „Hefur fyrir vana að ráða fólk í vinnu en greiða þeim ekki laun“
Fréttir
Í gær

Hraun gæti náð Reykjanesbraut á innan við einum degi – „Vísbendingar um að virknin sé að færast“

Hraun gæti náð Reykjanesbraut á innan við einum degi – „Vísbendingar um að virknin sé að færast“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dreginn fyrir dóm vegna nauðgunar árið 2015

Dreginn fyrir dóm vegna nauðgunar árið 2015
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar í veikindaleyfi

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar í veikindaleyfi