Jón Þórisson, fyrrverandi forstjóri VBS fjárfestingabanka og aðstoðarforstjóri Íslandsbanka, hefur verið ráðinn í sumarstarf á Morgunblaðinu. Þar mun hann bætast í hóp blaðamanna á viðskiptaritstjórn blaðsins. Morgunblaðið missti spón úr aski sínum þegar Baldur Arnarson, einn öflugast blaðamaður Moggans um árabil, lét af störfum fyrr í þessum mánuði en Baldur hafði undanfarna mánuði einkum skrifað viðskiptafréttir í blaðið.