fbpx
Laugardagur 08.febrúar 2025
Fréttir

Safnaði þremur milljónum í 222 skákum

Hrafn Jökulsson safnaði fyrir sýrlensk flóttabörn – Féll á tíma gegn Friðriki – Framlög enn að berast

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. maí 2016 14:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrafn Jökulsson efndi til skákmaraþons í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. Hann sat að tafli í þrjátíu klukkustundir og tefldi á þeim tíma 222 skákir. Hrafn er slunginn skákmaður og vann flesta. Þó mætti hann ofjörlum sínum og erfiðasta skák helgarinnar var að sögn Hrafns viðureignin við Friðrik Ólafsson stórmeistara. Hann lýsir skákinni svo: „Var skemmtilegasta skák helgarinnar og sú eina þar sem ég féll á tíma. Þá var ég náttúrlega kominn með tapaða stöðu, eftir ævintýralegar flækjur og fórnir á báða bóga.“

Kominn í þrjár milljónir

Áheit á Hrafn og framtakið skiluðu sér í 2,2, milljónum króna. „Framlög gesta og áskorenda og þeirra sem lögðu inn á söfnunarreikning Fatimusjóðs meðan á maraþoninu stóð skila okkur upp í þrjár milljónir,“ sagði kampakátur Hrafn í samtali við DV í gær, mánudag.

„Hver einasta króna fer í verkefni UNICEF í þágu sýrlenskra barna, því kostnaður við söfnunina og maraþonið var núll krónur og vaskur hópur gaf vinnu sína með mikilli gleði.“

Ekki er að fullu ljóst hver endanleg söfnunarfjárhæð verður og geta einstaklingar og fyrirtæki enn styrkt framtakið. „Nú síðast í morgun var lögmannsstofan LOGOS að koma með framlag vegna maraþonsins, og söfnunin heldur áfram hjá Fatimusjóði,“ sagði Hrafn í samtali við DV.

Mátaði forsetaefnið

Þegar DV bar að garði á laugardagsmorgun var Hrafn í essinu sínu, úthvíldur og til í slaginn. Í morgunmat tók hann Þóri Guðmundsson, deildarstjóra Rauða kross Íslands. Næstur í stólinn var forsetaframbjóðandinn Guðni Th. Jóhannesson. Áður en skákin hófst sagði Guðni Th. „Megi sá besti vinna, í þessu eins og öðru.“ Hann reyndist ekki mikil fyrirstaða fyrir Hrafn Jökulsson sem mátaði hann frekar örugglega. Aðrar skákir sem Guðni Th. teflir þessa dagana eru flóknari og meiri tími í boði.

„Ég er meira en sáttur. Ég er himinlifandi yfir frábærum undirtektum og stuðningi við góðan málstað. Og fyrst og fremst þakklátur öllum þeim sem lögðu lið, komu og tefldu eða fylgdust með, og hvöttu okkur áfram,“ sagði Hrafn í samtali við DV að afloknu maraþoninu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ævintýralega löng flugferð frá Tenerife til Akureyrar: Enduðu í Glasgow eftir átta tíma flug – Mikið klappað þegar vélin loksins lenti

Ævintýralega löng flugferð frá Tenerife til Akureyrar: Enduðu í Glasgow eftir átta tíma flug – Mikið klappað þegar vélin loksins lenti
Fréttir
Í gær

Elín: „Ég er þreytt á að finnast ég þurfa að réttlæta og verja starfið mitt”

Elín: „Ég er þreytt á að finnast ég þurfa að réttlæta og verja starfið mitt”
Fréttir
Í gær

Svona er Donald Trump sagður ætla að stöðva stríðið í Úkraínu

Svona er Donald Trump sagður ætla að stöðva stríðið í Úkraínu
Fréttir
Í gær

Staðfesta átta ára fangelsis­vist yfir Mohamad

Staðfesta átta ára fangelsis­vist yfir Mohamad
Fréttir
Í gær

Jón Gnarr fær þingsæti þrátt fyrir skilorðsbundinn dóm – Tvíhöfði truflaði Alþingi með gríninnslagi

Jón Gnarr fær þingsæti þrátt fyrir skilorðsbundinn dóm – Tvíhöfði truflaði Alþingi með gríninnslagi
Fréttir
Í gær

Árásin í Svíþjóð: „Þið ættuð að yfirgefa Evrópu“ – Sýrlendingar meðal þeirra sem létust

Árásin í Svíþjóð: „Þið ættuð að yfirgefa Evrópu“ – Sýrlendingar meðal þeirra sem létust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vendingar í rannsókn dularfyllsta morðmáls Evrópu – Böndin beinast að tæpum svissneskum sérsveitarmanni

Vendingar í rannsókn dularfyllsta morðmáls Evrópu – Böndin beinast að tæpum svissneskum sérsveitarmanni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brynjar Karl birtir myndband sér til varnar – „I rest my case, your honor!“

Brynjar Karl birtir myndband sér til varnar – „I rest my case, your honor!“