Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur sent út tilkynningu þar sem hann boðar til blaðamannafundar á Bessastöðum í dag klukkan 16:15.
Engar upplýsingar er að hafa um efni fundarins.
Ólafur Ragnar tilkynnti í áramótaávarpi sínu að hann hygðist ekki gefa kost á sér á ný til embætti forseta Íslands, en hann var þó óljósari í tali þegar við hann var rætt eftir blaðamannafund þar sem hann lýsti fundi sínum og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra í byrjun apríl. Þar sagði hann ekki við hæfi að svara slíkum spurningum á þeim tímapunkti, þegar hann var spurður beint út hvort hann hygðist gefa kost á sér á ný vegna umróts í stjórnmálum á Íslandi.