Fimmtudaginn 17. júlí árið 1930 sáu íbúar Reykjavíkur hlut, sem líktist helst geimfari, fljúga í áttina að borginni. Þetta var hið tignarlega þýska loftfar, Graf Zeppelin, eða eins og Íslendingar kölluðu það, Zeppelin greifa. Hornfirðingar höfðu fyrst séð farið og sendu tilkynningu um það til Reykjavíkur. Í blaðinu Fálkanum var skrifað:
„Hægt og hátignarlega færðist hann nær og gljáði á gráan skrokkinn í sólskininu. Flaug hann nokkurra stund mjög hægt yfir borgina í stórum hringjum og þótti öllum það fögur sjón og mun hún flestum ógleymanleg er sáu, enda hefir Ísland aldrei fengið merkilegri heimsókn loftleiðis en í þetta sinn. Stærð loftskipsins er gífurlega mikil og sáu menn það best af samanburði við „Súluna“ okkar, er hún sveimaði í kringum skipið til þess að fagna því.“
Loftfarið hét formlega LZ 127 Graf Zeppelin og var smíðað tveimur árum áður. Það var notað vel fram á valdatöku nasista en flaug sína hinstu ferð árið 1937. Alls flaug Graf Zeppelin 590 ferðir. Farið var nefnt í höfuðið á uppfinningamanninum og hönnuðinum Ferdinand von Zeppelin, sem lést árið 1917.
Fánar voru dregnir að húni í Reykjavík þegar Zeppelin greifi flaug yfir borgina. Hélt það í norður og sást skömmu seinna frá Akranesi.