Félagarnir eru á meðal myndarlegustu og skemmtilegustu manna landsins og aldrei lengi einhleypir. Báðir hafa þeir nýlega fundið ástina og þurfa því ekki að skera úr sér hjartað með skeið.
Sverrir og Kristín Eva Geirsdóttir eru skráð saman í samband á Facebook, en Kristín Eva starfar sem sérfræðingur í flugöryggis- og flugverndarmálum á Keflavíkurflugvelli. Kristín Eva bjó í nokkur ár í Katar, þar sem hún starfaði sem flugfreyja hjá Qatar Airways og einnig sem lögfræðingur, en hún er með meistarapróf í flug- og geimrétti í vasanum.
Auðunn og Rakel Þormarsdóttir eru ekki skráð í samband enda er Rakel ein fárra Íslendinga sem er ekki á samfélagsmiðlum. Rakel sem er 35 ára, varð fræg á einni nóttu 17 ára gömul þegar myndir af henni birtust á auglýsingaspjöldum fyrir Top Shop um Reykjavík og víðar. Þá hafði hún tekið þátt í Fordkeppninni og síðar reyndi hún fyrir sér í módelstörfum með góðum árangri. Bransinn átti þó ekki við hana og fór hún seinna í ítölskunám í Lugano í Sviss.