fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025

Stjörnuspá vikunnar – Lífið fer að verðlauna þig á næstu dögum.

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 23. ágúst 2020 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér er hún komin, brakandi fersk stjörnuspá fyrir vikuna. Hvað segja stjörnurnar um næstu viku ?

Vikan 21. ágúst – 27. ágúst

Hrútur 

21.03. – 19.04.

stjornuspa

Þú ert eflaust byrjuð/aður að fasta eða komin/n í 3 vikna hreinsunarkúr. Við styðjum þig heilshugar fagri Hrútur því þú ert tilbúin/n í rútínu og nýja áskoranir og ekki síst þær sem snúa að sjálfum þér. Mundu þó að þetta er langhlaup og skyndilausnir eru til þess fallnar að valda vonbrigðum.

Naut

20.04. – 20.05.

stjornuspa

Nautið okkar er í hreiðurstuði líkt og þegar kona er rétt að fara missa legvatnið. Ólétt eður ei þá finnur þú mikla löngun til að nostra, mála, kaupa nýjan Ikeaskáp eða jafnvel skrolla í gegnum fasteignavefinn.

Tvíburar

21.05. – 21.06.

stjornuspa

Ha?! Hvað sagðir þú? … ég heyrði það ekki alveg! Það er út af því við heyrum ekki hugsanir. Ótrúlegt hvað það er stundum auðvelt að fá sitt fram ef maður nær að koma orðum að því. Finndu kjarkinn og segðu það upphátt.

Krabbi

22.06. – 22.07.

stjornuspa

Heppilegur fundur fer vel og þú rennur í nýjar framkvæmdir! Nýtt atvinnutækifæri og það í nýrri grein sem gefur þér tækifæri til þess að læra og stækka. Nú má ekki seinna vera, farðu að opna Excel og plana og pæla.

Ljón

23.07-22.07.

stjornuspa

Óskaðu þér! Verði þinn vilji og allt það. Heimurinn er þér sérlega hliðhollur um þessar mundir. Lögmál aðdráttaraflsins á hér við, rissaðu upp, skrifaðu og teiknaðu þessar óskir, sjáðu það fyrir þér og áður en þú veist verður þetta að raunveruleika.

Meyja

23.08. – 22.09.

stjornuspa

Ef þú átt óklárað verk eftir þá er þetta vikan til þess að drífa það í gegn. En stundum er það einmitt eitthvað sem dregur úr eða heldur aftur af okkur ef manni finnst eitthvað óuppgert. Þetta íþyngir þér meira en þig grunar. Koma svo – klára málið!

Vog

23.09. – 22.10.

stjornuspa

Þú ættir auðvitað helst að búa í einhverri kommúnu. Fólkið þitt er þér allt og þú finnur það sérstaklega þessa dagana. Hlustaðu á innsæið og nýttu tímann þinn í samverustundir með vinum og fjölskyldu.

Sporðdreki

23.10. – 21.11.

stjornuspa

Þitt helsta eðli fær að njóta sín þessa vikuna og það er að vera leiðtogi. Ný verkefni sem krefjast stjórnunar koma til þín og þú tekst á við þau eins og allt annað sem kemur til þín – af fagmennsku og alúð. Mundu bara að jafnvægið milli vinnu og heimilisins er lykillinn að góðu janfvægi.

Bogmaður

22.11. – 21.12.

stjornuspa

Frelsið er yndislegt og ég geri það sem ég vil … eftir smá mótlæti þá finnur þú farsælan farveg á ný og sérð allt í nýju ljósi. Þú hefur unnið þér inn góð karmastig. Lífið fer að verðlauna þig á næstu dögum. Allt fer að ganga upp og jafnvægið tekur yfir.

Steingeit

22.12. – 19.01.

stjornuspa

Kæra Steingeit, ef þú hefur verið eitthvað stefnulaus þá ekki örvænta. Ný tækifæri koma til þín á næstunni og það fleiri en eitt, alveg þannig að þú færð góðan valkvíða í staðinn. Njóttu síðusta daga sumarsins því þetta verður erilsamur vetur hjá þér.

 Vatnsberi

20.01. – 18.02.

stjornuspa

Þú finnur þessa vikuna að það er mikilvægt fyrir þig að finna sjálfstæði í því sambandi sem þú ert í. Hvort sem það er með maka eða nánum vini þá muntu finna meira frelsi í að læra líka að vera einn með sjálfri/um þér og ekki stóla á neinn annan.

Fiskur

19.02. – 20.03.

stjornuspa

Sjálfsást og dekur, takk fyrir! Lognið eftir storminn er mætt en þú þarft að passa að huga vel að þér. Þér líður eins og allt sé í lagi en mögulega áttu eftir að vinna smá úr því sem hefur komið upp á síðustu misseri. Ekki láta gamla erfiðleika hlaða utan á sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Í bréfi frá Isaac Newton spáði hann fyrir um heimsendi

Í bréfi frá Isaac Newton spáði hann fyrir um heimsendi
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Segir Jón Pétur Zimsen kasta steinum úr glerhúsi – Blokkaði fyrrum nemanda sinn á Facebook í aðdraganda kosninganna

Segir Jón Pétur Zimsen kasta steinum úr glerhúsi – Blokkaði fyrrum nemanda sinn á Facebook í aðdraganda kosninganna
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Læknir segir að þessi 5 að því virðist meinlausu einkenni geti verið merki um krabbamein

Læknir segir að þessi 5 að því virðist meinlausu einkenni geti verið merki um krabbamein
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

England: Þrjú mjög óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni – Arsenal tapaði gegn West Ham

England: Þrjú mjög óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni – Arsenal tapaði gegn West Ham
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sjáðu mjög laglegt mark Fernandes beint úr aukaspyrnu

Sjáðu mjög laglegt mark Fernandes beint úr aukaspyrnu
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Læknir segir að þetta myndi hann gera ef hann þyrfti að léttast

Læknir segir að þetta myndi hann gera ef hann þyrfti að léttast
EyjanFastir pennar
Fyrir 15 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitískasta þversögnin á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Pólitískasta þversögnin á Íslandi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Dóttirin greindist með sama sjúkdóm og Selena Gomez: Hélt að lífið væri búið – ,,Ég var í rúminu í tæplega tvo mánuði“

Dóttirin greindist með sama sjúkdóm og Selena Gomez: Hélt að lífið væri búið – ,,Ég var í rúminu í tæplega tvo mánuði“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.