Hafþór Júlíus Björnsson, einnig þekktur sem Fjallið, og eiginkona hans Kelsey Henson greindu frá því í vikunni að þau ættu von á dreng í október. DV lék forvitni á að vita hvernig þau eiga saman ef horft er í stjörnumerkin.
Hafþór Júlíus er Bogmaður en Kelsey er Fiskur. Þessi merki eru algjörar andstæður en ef þau gefa sér tíma til að sinna sambandinu getur það blómstrað á heilbrigðan hátt. Bogmaður er hugsuður, heimspekingur og fer auðveldlega úr einu í annað. Fiskurinn horfir meira inn á við og er í sífelldri sjálfsskoðun. Bæði Fiskurinn og Bogmaðurinn hafa mikla aðlögunarhæfni og eiga auðvelt með að gefa hvor öðrum rými til að vera og njóta.
Einn styrkleiki þeirra er að þau eru bæði mjög jákvæð og bjartsýn á framtíðina. Þau eru líka bæði frekar slök. Hvorugt þeirra tekur sig of alvarlega. Það er stutt í hláturinn og þeim finnst gaman að verja tíma saman. Meðal veikleika parsins er skortur á trausti og það getur tekið tíma að byggja upp traustið í sambandinu.
Fæddur: 26. nóvember 1988
Bogmaður
Fædd: 5. mars 1990
Fiskur