Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og trommuleikarinn Hallgrímur Jón Hallgrímsson eiga von á sínu fyrsta barni saman, en fyrir á Hallgrímur einn uppkominn son. DV ákvað því að lesa í stjörnumerkin og athuga hvernig þau Katrín og Hallgrímur eiga saman.
Katrín Halldóra er krabbi en Hallgrímur er tvíburi. Samband þessara tveggja merkja getur orðið afar áhugavert. Krabbinn er mjög viðkvæmur og tilfinninganæmur og á stundum erfitt með að eiga samskipti á skýran máta. Það er hins vegar ekki vandamál hjá tvíburum sem segja nákvæmlega það sem þeir hugsa. Það hvetur krabbann til að koma út úr skelinni og getur hann haft róandi áhrif á æstan tvíburann.
Krabbinn og tvíburinn horfa á heiminn á gerólíkan hátt. Ef virðing þeirra er gagnkvæm ná þau að skilja hvort annað á mjög djúpan og einstakan hátt.
Heimakæri krabbinn dekrar við tvíburann. Þá er krabbinn með mikið og gott innsæi en þarf mikla ást og umhyggju frá maka sínum. Ef tvíburinn veitir krabbanum ekki þá hlýju geta vandamál skapast í sambandinu. Mestu skiptir þó að krabbinn nái að tjá tilfinningar sínar, því tvíburinn á það til að verða afbrýðisamur og lesa of mikið í aðstæður.
Katrín Halldóra
Fædd: 4. júlí 1989
Krabbi
-uppátækjasöm
-hlý
-traust
-tilfinninganæm
-skapstór
-óörugg
Hallgrímur
Fæddur: 20. júní 1976
Tvíburi
-forvitinn
-með mikla aðlögunarhæfni
-fljótur að læra
-skipulagður
-taugaóstyrkur
-ákvarðanafælinn