fbpx
Föstudagur 21.febrúar 2025

Lesið í tarot íslensku klámstjörnunnar: Neikvæðnisraddir tefja fyrir honum

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 14. mars 2020 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefan Octavian, klámstjarna og fylgdarsveinn, var borinn þungum sökum í vikunni af ósáttum viðskiptavinum sem höfðu keypt nærföt af honum í gegnum Snapchat. Stefan þvertók fyrir að hafa svindlað og segir málið hafa valdið honum miklu hugarangri. Því ákvað DV að leggja tarotspil fyrir Stefan og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér, en lesendur DV geta sjálfir dregið tarotspil á vef DV.

Hörundsár

Fyrsta spilið sem kemur upp fyrir Stefan er 9 sverð. Stefan þarf að varast að leyfa hindrunum fortíðar að eyðileggja góðar stundir sem hann er að upplifa núna. Stefan er einnig að reyna að flýja eitthvað sem gerðist í fortíðinni en það má hann alls ekki gera. Hann þarf að taka á honum stóra sínum og takast á við þau vandamál sem blasa við. Stefan á það til að vera mjög hörundsár og taka skoðanir annarra of nærri sér. Það tefur fyrir honum og hann þarf að kljást við kvíða næstu vikur út af þessu. Hann er hins vegar fullkomlega fær um að hreinsa allar hindranir úr vitund sinni og blása á neikvæðnisraddirnar.

Velferð náungans

Næst er það Keisarinn. Það táknar tækifæri sem Stefan stendur frammi fyrir núna. Hann þarf að kanna möguleika framtíðarinnar gaumgæfilega því nýtt starf er í kortunum hjá honum sem getur gefið af sér alls kyns spennandi möguleika. Þá skal Stefan muna að velferð náungans getur komið honum lengra en hann grunar. Hann skal ekki fyllast öfund vegna velgengni annarra því hún getur verið lykillinn að hans eigin velgengni.

Góð vinátta

Loks er það Stafagosi. Það spil táknar góðan vin Stefans, líflega manneskju sem færir Stefani skemmtilegar stundir og spennu. Þessi vinátta er byggð á trausti og fram undan eru góðir tímar. Þessi manneskja færir Stefani góðar fréttir innan tíðar og við það fyllist hann orku og metnaði. Verkefni sem er nýtt af nálinni fyllir Stefan eldmóði og ný tækfæri bíða hans handan hornsins. Virkilega spennandi tímar þar sem þessi góði vinur kemur sterkur inn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

„Þarf einungis örfáa skjálfta til að setja af stað mikið viðbragð á svæðinu“

„Þarf einungis örfáa skjálfta til að setja af stað mikið viðbragð á svæðinu“
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Dónalegur brúðkaupsgestur eyðilagði stóra augnablikið

Sjáðu myndbandið: Dónalegur brúðkaupsgestur eyðilagði stóra augnablikið
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 klukkutímum

Steinunn Ólína skrifar: Ekki vera undirsáti – vertu skapandi þátttakandi

Steinunn Ólína skrifar: Ekki vera undirsáti – vertu skapandi þátttakandi
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki vísaði tveimur ferðamönnum frá af því þau töluðu ekki nógu góða ensku

Íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki vísaði tveimur ferðamönnum frá af því þau töluðu ekki nógu góða ensku
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Ragnar Erling varð fyrir skelfilegri árás á Kaffistofu Samhjálpar – Bensíni hellt yfir hann og hótað að kveikja í

Ragnar Erling varð fyrir skelfilegri árás á Kaffistofu Samhjálpar – Bensíni hellt yfir hann og hótað að kveikja í

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.