fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024

Andstæður mætast – Nenna engu haltu-mér-slepptu-mér veseni

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 24. febrúar 2020 20:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónskáldið Hildur Guðnadóttir hefur svo sannarlega heillað heimsbyggðina upp úr skónum síðustu vikur og mánuði. Hennar heittelskaði, tónskáldið Sam Slater, hefur staðið sem klettur við bak hennar. Því datt DV í hug að rýna í stjörnumerki turtildúfnanna og athuga hvernig þær eiga saman.

Hildur er meyja og Sam er krabbi, tvö afar ólík merki enda blossar þessi ást upp hratt og örugglega. Meyjan og krabbinn þurfa smá tíma til að sjá hve góð þau eru saman, en það þýðir aðeins að sambandið verður traustara fyrir vikið.

Bæði meyjan og krabbinn eru afar metnaðarfull og hlaupa í átt að markmiðum sínum. Þau eru stoð og stytta hvort annars og virkilega trú hvort öðru. Hvorugt merkið er gefið fyrir einnar nætur gaman og því nenna þau engu haltu-mér-slepptu-mér veseni.

Bæði krabbinn og meyjan leggja hart að sér og uppskera það sem þau hafa sáð. Þau vilja ekki fá neitt gefins og geta ekki notið ríkidæmis eða velgengni án þess að vita að þau hafi unnið fyrir því.

Vissulega geta þau stundum farið í taugarnar á hvort öðru. Meyjan er ofboðslega smámunasöm oft og krabbinn mikill sveimhugi. En smáhnökrar eru auðveldlega leystir þegar sambandið er jafnsterkt og samband Hildar og Sams.

Hildur
Fædd: 4. september 1982
Meyja

-traust
-ljúf
-vinnuþjarkur
-hagsýn
-feimin
-of gagnrýnin

Sam
Fæddur: 23. júní 1989
Krabbi

-þrautseigur
-hugmyndaríkur
-traustur
-tilfinningavera
-óöruggur
-skaphundur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Staðfesta brottför hans frá Arsenal

Staðfesta brottför hans frá Arsenal
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Þetta eru stórstjörnurnar sem velja Ungfrú Ísland 2024

Þetta eru stórstjörnurnar sem velja Ungfrú Ísland 2024
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.