Myndband sem sýnir eitt besta eldhústrix allra tíma fer eins og eldur í sinu um netheima. Myndbandinu var upphaflega deilt á TikTok og hefur fengið yfir þrjú milljón áhorf.
Adi Kempler sýnir í myndbandinu hvernig er hægt að losna við fasta bletti úr plastílátum á einfaldan máta. Þetta er svo einfalt að þú trúir því örugglega ekki.
Þú byrjar á því að setja uppþvottalög og vatn í plastílátið, og svo smá eldhúspappír. Síðan lokarðu ílátinu og hristir það vel og vandlega. Eftir það ættu blettirnir að vera farnir.
Sjáðu hvernig hún gerir þetta í myndbandinu hér að neðan.
@adikemplerThis hack has saved so many of my Tupperware friends. Try it!!!! ##fyp ##cookingvideos ##cookinghacks ##lifehacks ##hacks ##stainremover ##foryou ##foryoupage♬ original sound – adikempler