Breska raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Lauren Goodger hefur ekki farið varhluta af þeirri brjálæðislegu útlitsdýrkun sem tröllríður heiminum. Þessi 33 ára gamla kona hefur gengist undir svo margar lýta- og fegrunaraðgerðir að hún er orðin nánast óþekkjanleg. En það dugir ekki til. Í gær birti hún fallega minningu á Instagram; mynd af sér fimm ára gamalli ásamt pabba sínum, en glöggir fylgjendur tóku eftir að ekki var allt með felldu. Á myndinni, sem birtist í sjálfsævisögu hennar frá árinu 2013, var búið að eiga við útlit hennar og pabba hennar.
Lauren hafði síkkað á sér hárið, kryddað það með ljósum strípum, stækkað varirnar, fjarlægt freknur og hrukkur við pírð augun. Og pabbi gamli fékk líka mýkri andlitsdrætti auk þess sem sumir tóku eftir því að hún hafði gert varirnar á honum fyllri.
Lauren hefur lengi legið undir ámæli fyrir að breyta myndum af sér og gefa þannig fylgjendum sínum enn brenglaðri sýn á veruleikann. Talsmaður hennar gerði þó lítið úr málinu og sagði systur Lauren hafa sett filter á hana áður en hún sendi henni myndina og það hefði einfaldlega farið framhjá Lauren og bætti svo við; „Lauren finnst hlægilegt að fólk hafi meiri áhyggjur af breyttum myndum af henni heldur en heimsfaraldrinum og heimsmarkaðshagkerfinu.“