Nú er hægt að leigja kynlífsherbergi í miðbæ Reykjavíkur í gegnum vefsíðuna Sexroom.is. Umrætt herbergi er staðsett í Reykjavík, það er útbúið kynlífstækjum, rólu, bekk, rúmi, auk baðherbergis. Mannlíf greinir frá þessu.
Herbergið er staðsett í Reykjavík. Fyrsti klukkutíminn kostar 15.000 krónur, eftir það kostar hver klukkutími 6.000 krónur, innifalið í verðinu er þrif á herberginu.
Þegar farið er inn á vefsíðuna, er einfaldlega hægt að velja klukkan hvað þú vilt mæta og hversu lengi þú vilt vera. Þó virðist vera mikilvægt að notendur undirriti ítarlega skilmála.
Skilmálana má finna á heimasíðunni. Þar má finna ýmsar upplýsingar líkt og að íslensk lög gildi í herberginu, það sem gerist inn í herberginu sé á ábyrgð leigjanda, ekki leigusala. Auk þess kemur fram að leigusali hafi ekki rétt á aðgangi að herberginu á leigutímabilinu nema að grunur liggi á um að brotið sé á skilmálum samningsins.
„Fólk er mjög ánægt með hvað aðstaðan er hrein og snyrtileg og hvað þetta er allt saman pró. Fólki finnst þetta vera alveg til fyrirmyndar.“
Sagði ónafngreindur eigandi Sexroom.is í samtali við Mannlíf. Hann sagði að um væri að ræða tilraunaverkefni sem hefði byrjað mjög vel.
„Við opnuðum fyrir þjónustuna fyrir svona mánuði síðan og viðbrögðin hafa verið góð hjá þeim sem hafa prófað herbergið,“