fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024

6 ára gömul stúlka getur bara borðað KFC

Unnur Regína
Föstudaginn 3. júlí 2020 13:16

Akira að fá sér að borða

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Foreldrar sex ára  stúlku með sjaldgæfa átröskun óttast að hún muni svelta í skólanum eftir að hann bannaði eina matinn sem hún getur borðað.  The Sun greinir frá.

Akira Gujadhur er með afar sjaldgæfa átröskun en hún borðar einungis mat frá Kentucky Fried Chicken. Þetta byrjaði allt þegar hún var 8 mánaða og fékk alvarlega sýkingu í háls sem varð til þess að hún hætti að borða.

Akira getur bara borðað svokallaðan popcorn-kjúkling frá KFC og segjast foreldrar hennar hafa eytt þúsundum dollara í að kaupa fyrir hana mat. Akira á að byrja í nýjum skóla í September en starfsfólk skólans leyfir ekki KFC  á skólalóðinni. Forsvarsmenn skólans segja matinn óhollan og að skapast geti vandamál fyrir önnur börn með ofnæmi. Á vefsíðu KFC kemur fram að popcorn-kjúklingur innihaldi mjólk, egg, hveiti, glúten og sellerí. Í einum skammt af kjúklingnum eru 285 hitaeiningar og 1,7 gr af fitu.

Herra Gujadhur sem vinnur sem stjórnandi í stóru fjármálafyrirtæki segir að hann gæti þurft að hætta í vinnu sinni svo hann geti sótt dóttur sína í hádeginu og farið með hana á KFC.

Þegar Akira var fyrst greind með þessar átröskun ráðlögðu læknar foreldrum hennar að setja nokkrar tegundir af mat fyrir framan hana og láta hana velja eitthvað. Hún valdi bita af popcorn-kjúklingi og síðan hefur hún neitað að borða nokkuð annað. Henni eru gefin vítamín til þess að ganga úr skugga um að hún fái öll næringarefni sem hún þarf.

Gujadhur-fjölskyldan

Læknar sendu bréf á Kentucky Fried Chicken

Læknar Akiru á St. Thomas-spítalanum skrifuðu KFC bréf og báðu keðjuna um að útvega fjölskyldunni frosinn popcorn-kjúkling til að koma Akiru í gegnum COVID-19 og einangrunina sem fylgdi því.

Talsmanneskja KFC talaði við The Sun og sagði að keðjan hefði útvegað fjölskyldunni mat í apríl.

Akira þurfti að skipta um skóla vegna þess að gamli skóli hennar gat ekki veitt henni þá kennslu sem hún þurfti. Foreldrar hennar útveguðu henni þá pláss í Portfield skólanum í Christchurch. Gujadhurs hjónin áfrýjuðu ákvörðun skólans um að leyfa ekki KFC á lóðinni en töpuðu málinu á sveitastjórnarfundi.

Herra Gudjahur segir fjölskylduna vera í uppnámi vegna málsins og finnst skólinn vera óábyrgur með því að taka þessa afstöðu.

Gamli skóli Akiru átti ekki í neinum erfiðleikum með að gefa henni popcorn-kjúklinginn en þar sem skólinn greiddi matinn og kostaði hann tæpar 350 þúsund krónur á ári gátu þeir ekki boðið Akiru upp á hann lengur.

Herra Gudjahur sagði í samtali við The Sun: „Ég skil ekki þessa ákvörðun. Dóttir mín getur ekki tjáð sig og hún skilur þetta ekki. Yfirvöld eru að segja að hún geti ekki farið í skóla án þess að borða en skólinn segir að hún megi ekki borða það eina sem hún getur borðað. Skólinn er 50 mínútum frá vinnustað mínum og við megum ekki koma með matinn inn í skólann. Í staðinn þurfum við að sækja hana og fara með hana að borða. Konan mín keyrir ekki og ég get ekki tekið mér alltaf frí í vinnunni. Eini valmöguleikinn er þá bara að svelta hana í skólanum.“ 

Talsmaður skólans sem er skóli fyrir börn með sérþarfir gaf út yfirlýsingu: „Í okkar skóla er forgangsatriði að öllum börnum líði vel og heilsa þeirra og öryggi sé í fyrsta sæti. Undir engum kringumstæðum myndum við setja barn í hættu. Þar sem persónuvernd ríkir getum við ekki tjáð okkur um einstaka mál en í þessu tiltekna máli verðum við að fara eftir dóm sveitarfélagsins.Við erum að vinna með gamla skólanum hennar og fjölskyldunni að því að Akira komi í skólann okkar og aðlagist lífinu þar.“

Popcorn-kjúklingurinn er það eina sem Akira getur borðað

Akira glöð í bragði

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ekkert pláss í liðinu eftir að hann jafnar sig af meiðslum

Ekkert pláss í liðinu eftir að hann jafnar sig af meiðslum
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Krafan um bann við laxeldi er krafa um að svipta fólki vinnunni, voninni og eignunum“

„Krafan um bann við laxeldi er krafa um að svipta fólki vinnunni, voninni og eignunum“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Horfðu á nýjan þátt af Íþróttavikunni – Landsleikirnir gerðir upp og Adam Páls í beinni frá Ítalíu

Horfðu á nýjan þátt af Íþróttavikunni – Landsleikirnir gerðir upp og Adam Páls í beinni frá Ítalíu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir að verkefnið taki Amorim marga mánuði

Segir að verkefnið taki Amorim marga mánuði
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Arnar Þór Jónsson: Það er siðrof á íslenskum fjármálamarkaði – kannski þarf að setja lög á Seðlabankann

Arnar Þór Jónsson: Það er siðrof á íslenskum fjármálamarkaði – kannski þarf að setja lög á Seðlabankann
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Juventus hefur áhuga og Chilwell líklegur til þess að fara

Juventus hefur áhuga og Chilwell líklegur til þess að fara
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Orðið á götunni: Sigurður Ingi ræðst á Bjarna Ben – „Þegar ölið er af könnunni er vináttan úti“

Orðið á götunni: Sigurður Ingi ræðst á Bjarna Ben – „Þegar ölið er af könnunni er vináttan úti“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Stríðið milli Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna heldur áfram

Stríðið milli Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna heldur áfram
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Breiðablik hefur áhuga á Benedikt Warén

Breiðablik hefur áhuga á Benedikt Warén