Samfélagsmiðlastjarnan Jenna Marbles er hætt á YouTube. Hún er ein af fyrstu YouTube-stjörnunum og hefur verið að gera myndbönd í áratug. Hún er með yfir 20 milljón fylgjendur á miðlinum en hefur ákveðið að segja þetta gott, allavega í bili.
Jenna greinir frá þessu í nýju myndbandi þar sem hún biðst einnig afsökunar á gömlum fordómafullum myndböndum. Meðal annars fyrir myndband þar sem hún notar „blackface“ og hermir eftir rapparanum Nicki Minaj.
„Það var aldrei ætlun mín að nota „blackface.“ Ég veit ekki hvernig ég á að segja þetta en það skiptir ekki máli, það sem skiptir máli er að ég særði fólk. Og mér þykir það svo ótrúlega leitt,“ segir Jenna.
Jenna baðst afsökunar í myndbandi á YouTube-síðu sinni sem hefur þegar fengið þrjú milljón áhorf.
https://www.youtube.com/watch?v=Yz3mQhuMACs
Jenna baðst einnig afsökunar á myndböndum þar sem hún stundaði drusluskömm og myndbandi þar sem hún rappar: „Hey ching chong ling wong shake your king kong ding dong.“
Samfélagsmiðlastjarnan hefur tekið mörg gömul myndbönd úr birtingu. „Ég skammast mín fyrir margt í fortíð minni og ég hef fengið mörg skilaboð frá fólki að spyrja mig af hverju ég hef tekið mörg myndbanda minna úr birtingu,“ segir Jenna.
Hún sagði að gömlu myndböndin séu sönnun þess að hún hefur „þroskast“ síðastliðinn áratug, sem hún er „stolt“ af. En hún ákvað að taka myndböndin úr birtingu þar sem hún vill ekki móðga neinn eða særa. Jenna segist vera innilega miður sín yfir myndböndunum.
„Ég held ég ætli að taka mér pásu frá þessari YouTube-rás, ég veit ekki hvort það sé að eilífu. Ég veit ekki hversu lengi. Ég vil bara vera viss um að það sem ég geri særi ekki neinn. Þannig já. Ég er hætt í bili.“