Ástralska konan Katie-Jane Smith deildi ótrúlegri „fyrir og eftir“ mynd af ísskápnum sínum. Hún deildi myndinni í Facebook-hópinn Bunnings Mums Australia og vakti einnig athygli fjölmiðilsins news.au.
„Vá ég bjóst ekki við þessum viðbrögðum,“ segir Katie-Jane.
Í færslunni segir hún frá því hvernig henni tókst að breyta gömlum og þreyttum ísskáp fyrir tæplega tíu þúsund krónur.
Framkvæmdirnar tóku um þrjá daga.
Katie-Jane fékk ísskápinn gefins frá vinkonu sinni en var ekki nógu hrifin af útlitinu. Hún keypti kalkmálningu og útkoman er ótrúleg.
„Við gerðum þetta á meðan ísskápurinn var í sambandi. Færðum hann bara frá veggnum og settum papa undir hann.,“ segir hún.