Rannveig Rist, forstjóri ISAL í Straumsvík, tilkynnti fyrir stuttu að hún væri farin í veikindaleyfi fram á haust að ráði hjartalæknis. DV ákvað því að lesa í tarotspil Rannveigar, en lesendum er bent á að þeir geta dregið sín eigin tarotspil á vef DV.
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Rannveigu er Sólin. Það er bjart yfir Rannveigu eftir að hún tók þá stóru ákvörðun að hvíla sig í nokkra mánuði. Í einkalífi hennar ríkir mikil gleði vegna þessa. Það góða við Rannveigu er að hún kann að hlusta á sjálfið og hefur ávallt hugað vel að jafnvægi sínu. Hún er mjög meðvituð um að heimilislífið hrynur, sem og samband við vini, ef hún hugsar ekki vel um sig. Í fríinu nær hún að endurheimta orkuna og einkennir mikil sköpun þetta veikindaleyfi. Hún endurnýjar kynni við áhugamál sín og lætur drauma verða að veruleika.
Næst er það Sverðkonungur. Hann táknar manneskju í lífi Rannveigar sem er vel gefin og nýtur þess að stjórna. Þessi manneskja er líka sjálfstæð, uppfinningasöm og nýjungagjörn. Hún er afar metnaðarfull og vegnar vel í því starfi sem hún er í. Þessi manneskja er náin Rannveigu og mun reynast henni vel í veikindaleyfinu og býr yfir miklum krafti og hjálpar Rannveigu í nýju viðskiptatækifæri.
Loks er það Myntriddarinn. Hér eru á ferð skilaboð til Rannveigar. Mjög mikilvæg skilaboð. Þótt henni finnist hún ekkert hafa að gera í leyfinu þá hefur hún samt í nægu að snúast við að slaka á og virkja sína innri líðan. Njóta kyrrðarinnar. Þótt hugurinn leiti í ný verkefni með Sverðkonunginum þá verður hún að staldra við og bíða með allar stórar ákvarðanir. Árangurinn sem hún sækist eftir næst á endanum. Fyrst þarf henni að líða vel og temja sér þolinmæði.