Alex Mazhukhin er tveggja barna faðir og heldur úti YouTube-rásinni Mr. Build It.
„Eiginkona mín þarf að láta byggja hluti, og ég byggi þá fyrir hana,“ segir Alex í lýsingu YouTube-rásarinnar.
Hann leyfir áhorfendum að fylgjast með sér byggja, laga og breyta hinu og þessu. Í nýjasta myndbandi hans tekur hann sturtuna í gegn og er breytingin ótrúleg.
Sjáðu hvernig hann fór að þessu í myndbandinu hér að neðan.